Rómeó og Júlía - Korsunovas
Margverðlaunuð uppfærsla
Um verkið
Í vor gefst leikhúsáhugafólki einstak tækifæri til að sjá margverðlaunaða uppfærslu Oskars Korsunovas á þekktustu ástarsögu leikhúsbókmenntanna, Rómeó og Júlíu. Verkið kemur hingað í tengslum við Listahátíð í Reykjavík og verða aðeins tvær sýningar dagana 14. og 15. maí.
Kostunovas er einn besti leikstjóri heimsins í dag. Þessi uppsetning hefur ferðast um heiminn undanfarin 10 ár og er því ferðalagi langt frá því lokið.
Rómeó og Júlía vita að samkvæmt hefðinni eiga þau að vera erkióvinir, enda berjast fjölskyldur þeirra um völdin í Verónu. Magnaðasta ástarsaga allra tíma birtist hér í stórbrotinni uppsetningu Oskaras hefur ferðast um víða veröld síðustu tíu ár, hlotið fjölda verðlauna og er sannkallaður hvalreki fyrir íslenkst leikhúsáhugafólk. Sýningin er samstarfsverkefni Borgarleikhússins og Listahátíðar í Reykjavík. Aðeins verða tvær sýningar af þessari rómuðu uppsetningu, dagana 14. og 15 maí.
Í þessari uppsetningu berjast ættirnar tvær í bakaríum sem þær reka hvor um sig. Kraftur, húmor og magnað sjónaspil einkenna sýninguna. Oskaras er einn fremsti leikstjóri Evrópu en hann hefur verið ráðinn til að leikstýra jólasýningu Borgarleikhússins 2010 en það er Ofviðrið eftir Shakespeare.
Ástin blómstar í maí
Í maímánuði mun ástin blómstra í Borgarleikhúsinu. Leikhúsáhugafólki býðst einstakt tækifæri til að sjá tvær gjörólíkar uppsetningar á rómuðustu ástarsögu allra tíma, Rómeó og Júlíu eftir William Shakespeare. Samhliða þessu bíður Græna ljósið upp á Rómeó og Júlíu, Baz Luhrmanns í Háskólabíó. Einnig verða fyrirlestra og aðrir viðburðir þar sem lagt er út frá sögunni sígildu.
Tvær ólíkar uppsetningar tileinkaðar turtildúfunum frá Verónu verða á Stóra sviðinu í maí.
Græna ljósið lætur ástina einnig ráða för í maí og sýnir í tengslum við hátíðina meistaraverk Baz Luhrmanns upp úr verki Shakespeares þar sem þau Leonardo DiCaprio og Clare Danes léku svo eftirminnilega þau Rómeó og Júlíu.
Sýnt verður í Háskólabíó 20. og 21. maí kl. 20
Ógleymanleg uppsetning Vesturports
Árið 2002 frumsýndi Vesturport Rómeó og Júlíu á Litla sviði Borgarleikhússins. Sýningin sló í gegn og markaði hún upphafið að glæstu gengi leikhópsins. Síðan hefur sýningin ferðast víða um heim og hlotið mikla athygli enda uppsetningin mikið sjónarspil þar sem sirkus og leikhús mætast með nýjum hætti. Fyrsta sýning verður 11. maí 2010.
Aðstandendur
- Höfundur William Shakespeare
- Leikstjóri Oskaras Koršunovas
- Leikmynd Jūratė Paulėkaitė
- Búningar Jolanta Rimkutė
- Tónlist Antanas Jasenka
- Lýsing Eugenijus Sabaliauskas
Umsagnir
- „Mjög áhrifamikil sýning þar sem kómík var markvisst beitt til að skerpa dramatíkina... sýningin hefur sterkar klassískar vísanir ...agressíf á köflum og svo undurfögur... mjög sterk sýning“ LL, RUV
**** "Leikurinn var frábær… Oskaras Korsunovas mun mæta aftur til leiks í Borgarleikhúsinu í
desember og leikstýra jólasýningu hússins, Ofviðrinu eftir Shakespeare. Leikhúsáhugafólk sem
missti af Rómeó og Júlíu getur byrjað að hlakka til jóla." IÞ, Mbl
