Beint í leiðarkerfi vefsins.
Lítill smábær má muna fífil sinn fegurri, veisluhöldin eru búin og peningarnir á þrotum. Þegar fréttist að Milljarðamærin sé væntanleg aftur heim vaknar hjá íbúunum von um að hún láti eitthvað af auðæfum sínum renna til samfélagsins. Milljarðamærin, sem hrökklaðist úr bænum fyrir löngu með smán en auðgaðist síðan gríðarlega, lofar bæjarbúum háum fjárhæðum að uppfylltu einu skilyrði.
Hjartnæm saga af skrautlegu lífi fólks í blokk í Reykjavík sem ákveður að setja upp söngleik og efniviðurinn er það sjálft. Hárfinnur hárfíni er í forsvari fyrir hljómsveitina Sóna sem æfir stíft í kjallaranum á meðan Robbi húsvörður reynir ólmur að koma í veg fyrir að söngleikurinn komist á koppinn. Sjarmörinn Hannes reynir allt hvað hann getur að ganga í augun á Söru. Tekst þeim að frumsýna söngleikinn? Ná Sara og Hannes saman? Og hver á skjaldbökuna í baðkarinu?!
Leikfangasmiðurinn Jakob smíðar strengjabrúðu sem á töfrastundu lifnar við og forvitinn strákur, Gosi, verður til. Gosi á erfitt með að feta hinn rétta veg og í stað þess að hlýða föður sínum og fara í skólann heldur hann á vit vafasamra ævintýra. Tumi engispretta tekur að sér það hlutverk að kenna Gosa að þekkja muninn á réttu og röngu og forða honum frá ógæfu. En það er vandasamt starf og spurningin er: Tekst Gosa að öðlast samvisku og verða "alvöru drengur"?
Fjölskylda Lillu er allt annað en venjuleg. Mamma og amma keppast við að leggja henni lífsreglurnar. En er Peck bara góður frændi þegar hann býðst til að kenna henni á bíl? Ökutímar er áleitið leikrit sem fjallar um svik, ást og fyrirgefningu og tekur á viðkvæmu máli á óvenjulegan hátt. Hér er á ferðinni margbrotin þroska- og fjölskyldusaga sem fær áhorfendur til að súpa hveljur en er þó drifin áfram af heillandi húmor.
Febrúar er mánuður Söru Kane í Borgarleikhúsinu. Rústað (Blasted), fyrsta leikrit Söru Kane, var frumsýnt fyrir skemmstu og hefur fengið stórkostlegar viðtökur. Í kjölfarið verða leiklesin öll önnur verk þessa merka höfundar. Leiklestraröðin hefst þann 10. febrúar á öðru verki Kane, Ást Fedru, síðan verða verkin leiklesin í tímaröð og endað á 4:48 geðtruflun þann 3. mars 2009.
Þegar Rústað var frumsýnt árið 1995 olli það hálfgerðu uppþoti í leikhúsheiminum, svo sterk voru viðbrögðin. Gagnrýnendur á Íslandi fara afar fögrum orðum um uppsetningu Borgarleikhússins og Jón Viðar Jónsson gaf Rústað fullt hús stiga, fimm stjörnur. Meðal þess sem sagt hefur verið í dómum er: "Vel unnin og mögnuð sýning", "Magnað - missið ekki af", "loksins - loksins!" og "gríðarlega áhrifamikil".
Bræðurnir Coleman og Valene eru langt frá því að vera fyrirmyndarborgarar. Þrátt fyrir að vera komnir vel á fullorðinsaldur slást þeir stöðugt, drekka ótæpilega og lát föður þeirra virðist ekki snerta þá hið minnsta. Þegar sóknarpresturinn gerir örvæntingarfulla tilraun til þess að koma þeim til manns lítur þó út fyrir að eitthvað rofi til. Bleksvartur húmor og drepfyndin samtöl einkenna þetta alvöru gamanverk.
Lífið virðist dans á rósum hjá ungum nýgiftum hjónum en fyrr en varir þurfa þau að horfast í augu við ógnvekjandi leyndamál. Hversu langt eru þau reiðubúin að ganga til að bjarga hjónabandinu og ástinni? Erfiðustu yfirheyrslurnar í lífinu eru ekki framkvæmdar af lögreglu, heldur ástvinum. Versti dómarinn er eigin samviska, og ljótustu glæpirnir eru þeir sem aldrei eru tilkynntir. Spennandi og áleitið verk um svartnætti mannlegs eðlis, örvæntingu, lygar og þrár. Hversu vel þekkir maður maka sinn í raun?
Sumar sögur eru svo mannbætandi að skylda ætti fólk til að lesa þær. Óskar og bleikklædda konan segir af Óskari, tíu ára einstökum dreng, sem veit það sem enginn þorir að segja honum, að hann á skammt eftir ólifað. Eldri kona sem er sjálfboðaliði á sjúkrahúsinu, virðist vera sú eina sem hefur þroska og þor til að ræða hið óumflýjanlega við Óskar og ráðleggur honum að skrifa bréf til Guðs. Í bréfunum og samskiptum drengsins og vinkonu hans á sjúkrahúsinu birtist djúp lífsspeki sem þó er uppfull af hlýlegum leiftrandi húmor.
Hvað fær unga konu til að yfirgefa lúxuslíf í Bandaríkjunum og flytja á átakasvæði Palestínu og Ísraelsmanna? Bandaríski friðarsinninn Rachel Corrie lét lífið á Gaza-svæðinu 16. mars 2003 þegar hún reyndi að standa í vegi fyrir því að ísraelsk jarðýta eyðileggði palestínskt hús. Jarðýtan ók yfir hana og hún lést af sárum sínum. Rachel var aðeins 23 ára en skildi eftir sig dagbækur sem auk þess að bera lífsviðhorfi hennar og baráttuþreki glöggt vitni gefa sannfærandi mynd af leit ungrar manneskju að sjálfri sér og tilgangi í lífinu.
Í nóvember verður þetta vinsæla verk Íslenska dansflokksins endursýnt. Dans andi er yfirskrift yfir þessi tvö frábæru en gjörólíku verk eftir tvo af mest spennandi danshöfundum Norðurlanda,