Dansandi - Íslenski dansflokkurinn
Kvart eftir Jo Strömgren konung dansleikhússins
Í Kvart dansa dansararnir hvor fyrir annan. Ákafur og fagur dans við magnaða tónlist eftir finnska tónskáldið Kimmo Pohjonen sem hefur meðal annars unnið með Sigurrós og Múm. Búningar eru eftir Steinunni Sigurðardóttur, einn fremsta fatahönnuð okkar.
Höfundur Kvart Jo Strömgren hlaut Grímuverðlaunin 2008 sem besti danshöfundurinn fyrir Kvart og Emilía Gísladóttir var valinn besti dansarinn fyrir frammistöðu sína í verkinu.
Endastöð eftir Alexander Ekman
Ef Strömgren er konungurinn þá er Ekman krónprinsinn
Í Endastöð fer saman látbragð og dans þar sem við fylgjumst með hópi gamalmenna í leit þeirra að æskunni. Verkið er leikrænt, létt, fyndið og rómantískt.
Nokkrir dómar um Dans anda
" **** Flott sýning og skemmtileg"
Páll Baldvin Baldvinsson, Fréttablaðið
""... er Endastöð staðfastlega fyndið út í gegn"
Martin Regal, Morgunblaðið
"Allir dansararnir voru framúrskarandi"
Martin Regal, Morgunblaðið
