Ég heiti Rachel Corrie
Líf og dauði ungrar baráttukonu
Um verkið
Hvað fær unga konu til að yfirgefa lúxuslíf í Bandaríkjunum og flytja á átakasvæði Palestínu og Ísraelsmanna? Bandaríski friðarsinninn Rachel Corrie lét lífið á Gaza-svæðinu 16. mars 2003 þegar hún reyndi að standa í vegi fyrir því að ísraelsk jarðýta eyðileggði palestínskt hús. Jarðýtan ók yfir hana og hún lést af sárum sínum. Rachel var aðeins 23 ára en skildi eftir sig dagbækur sem auk þess að bera lífsviðhorfi hennar og baráttuþreki glöggt vitni gefa sannfærandi mynd af leit ungrar manneskju að sjálfri sér og tilgangi í lífinu.
Leikritið hefur farið sem eldur í sinu síðan það var frumsýnt í Royal Court leikhúsinu árið 2005. Leikarinn góðkunni Alan Rickman og breski blaðamaðurinn Katherine Viner skrifuðu upphaflegu leikgerðina. Þóra Karítas Árnadóttir fer með hlutverk Rachel Corrie og til að undirbúa sig ferðaðist hún víða, m.a. til Palestínu þar sem hún kynntist móður Rachel.
Frumsýnt 19. mars á Litla sviði
Aðstandendur
- Höfundur Alan Rickman, Katherine Viner
- Þýðing Gísli Rúnar Jónsson
- Leikstjórn María Ellingsen
- Leikmynd Filippía Elísdóttir
- Búningar Filippía Elísdóttir
- Tónlist Margrét Kristín Blöndal
- Leikarar Þóra Karítas Árnadóttir
