Nýja svið

Okutimar

Ökutímar

Fjölskylda Lillu er allt annað en venjuleg. Mamma og amma keppast við að leggja henni lífsreglurnar. En er Peck bara góður frændi þegar hann býðst til að kenna henni á bíl? Ökutímar er áleitið leikrit sem fjallar um svik, ást og fyrirgefningu og tekur á viðkvæmu máli á óvenjulegan hátt. Hér er á ferðinni margbrotin þroska- og fjölskyldusaga sem fær áhorfendur til að súpa hveljur en er þó drifin áfram af heillandi húmor.

 
Leiklestrar  - sýningum lokið

Sarah Kane

Febrúar er mánuður Söru Kane í Borgarleikhúsinu. Rústað (Blasted), fyrsta leikrit Söru Kane, var frumsýnt fyrir skemmstu og hefur fengið stórkostlegar viðtökur. Í kjölfarið verða leiklesin öll önnur verk þessa merka höfundar. Leiklestraröðin hefst þann 10. febrúar á öðru verki Kane, Ást Fedru, síðan verða verkin leiklesin í tímaröð og endað á 4:48 geðtruflun þann 3. mars 2009.

 
Rústað  - sýningum lokið

Rústað

Þegar Rústað var frumsýnt árið 1995 olli það hálfgerðu uppþoti í leikhúsheiminum, svo sterk voru viðbrögðin. Gagnrýnendur á Íslandi fara afar fögrum orðum um uppsetningu Borgarleikhússins og Jón Viðar Jónsson gaf Rústað fullt hús stiga, fimm stjörnur. Meðal þess sem sagt hefur verið í dómum er: "Vel unnin og mögnuð sýning", "Magnað - missið ekki af", "loksins - loksins!" og "gríðarlega áhrifamikil".

 

 
Vestrið eina - sýningum lokið

Vestrið eina

Bræðurnir Coleman og Valene eru langt frá því að vera fyrirmyndarborgarar. Þrátt fyrir að vera komnir vel á fullorðinsaldur slást þeir stöðugt, drekka ótæpilega og lát föður þeirra virðist ekki snerta þá hið minnsta. Þegar sóknarpresturinn gerir örvæntingarfulla tilraun til þess að koma þeim til manns lítur þó út fyrir að eitthvað rofi til. Bleksvartur húmor og drepfyndin samtöl einkenna þetta alvöru gamanverk.

 
Fýsn -  - sýningum lokið

Fýsn

Lífið virðist dans á rósum hjá ungum nýgiftum hjónum en fyrr en varir þurfa þau að horfast í augu við ógnvekjandi leyndamál. Hversu langt eru þau reiðubúin að ganga til að bjarga hjónabandinu og ástinni? Erfiðustu yfirheyrslurnar í lífinu eru ekki framkvæmdar af lögreglu, heldur ástvinum. Versti dómarinn er eigin samviska, og ljótustu glæpirnir eru þeir sem aldrei eru tilkynntir. Spennandi og áleitið verk um svartnætti mannlegs eðlis, örvæntingu, lygar og þrár. Hversu vel þekkir maður maka sinn í raun?

 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica