Sarah Kane

Sviðsettir leiklestrar í febrúar

Leiklestrar  - sýningum lokið

Um verkið

Febrúar er mánuður Söru Kane í Borgarleikhúsinu. Rústað (Blasted), fyrsta leikrit Söru Kane, var frumsýnt fyrir skemmstu og hefur fengið stórkostlegar viðtökur. Í kjölfarið verða leiklesin öll önnur verk þessa merka höfundar. Leiklestraröðin hefst þann 10. febrúar á öðru verki Kane, Ást Fedru, síðan verða verkin leiklesin í tímaröð og endað á 4:48 geðtruflun þann 3. mars 2009.

Sarah Kane (1971-1999) olli straumhvörfum í leikritun strax með fyrsta leikriti sýnu Rústað (Blasted) sem frumsýnt var í Royal Court leikhúsinu í London 1995. Lundúnabúar stóðu agndofa. Þessi 24 ára stúlka kom eins og stormsveipur inn í leikhúsið og rústaði viðteknum hugmyndum um samtímaleikritun með vægðarlausum og beinskeyttum verkum sínum.

Í hverjum leiklestri er einn leikstjóri fenginn til að stýra verkinu, hann fær eina viku til undirbúnings með leikurum og verður hver leiklestur fluttur aðeins einu sinni á þriðjudagskvöldunum í febrúarmánuði.

Aðstandendur


Þetta vefsvæði byggir á Eplica