Fýsn
Getur ástin fyrirgefið allt?
Um verkið
Lífið virðist dans á rósum hjá ungum nýgiftum hjónum en fyrr en varir þurfa þau að horfast í augu við ógnvekjandi leyndamál. Hversu langt eru þau reiðubúin að ganga til að bjarga hjónabandinu og ástinni? Erfiðustu yfirheyrslurnar í lífinu eru ekki framkvæmdar af lögreglu, heldur ástvinum. Versti dómarinn er eigin samviska, og ljótustu glæpirnir eru þeir sem aldrei eru tilkynntir. Spennandi og áleitið verk um svartnætti mannlegs eðlis, örvæntingu, lygar og þrár. Hversu vel þekkir maður maka sinn í raun?
Fýsn er sigurverk leikritasamkeppninnar "Sakamál á svið" sem LR stóð fyrir árið 2006. Verkið var valið úr hópi rúmlega þrjátíu aðsendra leikrita. Fýsn er síðasta verkið í þríleik eftir Þórdísi Elvu Þorvaldsdóttur Bachmann sem óhætt er að kalla eitt af athyglisverðustu leikskáldum af yngri kynslóðinni. Fyrsta verk þríleiksins, Brotið, var sýnt í Hafnarfjarðarleikhúsinu 2005, og í kjölfarið kom Hungur, sem var sýnt á litla sviði Borgarleikhússins 2006.
Frumsýnt 12. september á Nýja sviðinu í samstarfi við SPRON
Aðstandendur
- Höfundur Þórdís Elva Þorvaldsdóttir Backmann
- Leikstjórn Marta Nordal
- Leikmynd Rebekka A. ingimundardóttir
- Búningar Rebekka A. ingimundardóttir
- Lýsing Þórður Orri Pétursson
- Hljóðmynd Elísabet Indra Ragnarsdóttir
- Myndband Frank Þórir Hall
- Leikarar Björn Ingi Hilmarsson, Sara Dögg Ásgeirsdóttir, Víðir Guðmundsson, Theodór Júlíusson
Umsagnir
- "Með hreinum, fallegum kúbískum kubbum Rebekku Ingimundardóttur, mögnuðum hljómum Elísabetar Indru Ragnarsdóttur, flottri, dularfullri lýsingu Þórðar Orra Péturssonar og í leikandi skemmtilegri kóreógrafíu heldur Marta Nordal utan um þetta fyrsta leikstjórnarverk sitt í atvinnuleikhúsi og gefur því einkar glæsilegt heildarform."
- María Kristjánsdóttir, Morgunblaðið
Þessi frumraun Mörtu Nordal í leikstjórastólnum er vel heppnuð og sýningin heldur dampi allan tímann. Fýsn er nútímalegt leikrit, skrifað af fagmennsku. Það er ólíkt flestu öðru sem er á fjölunum um þessar mundir og því vel þess virði að bregða sér í Borgarleikhúsið."
- Arndís Þórarinsdóttir, 24 stundir
„Hafði virkilega gaman að þessari kvöldstund í Borgarleikhúsinu... Marta Nordal kemst afar vel frá sínu fyrsta leikstjórnarverkefni... Maður hefur algera samúð með fólkinu sem þarna er að takast á við sín leyndarmál... Mjög gott kvöld... skemmtilegt samspil verksins og uppsetningar leikstjórans... verkið er mjög vel skrifað, eðlilegar og góðar replikkur... Skemmtileg stílfærsla í uppsetningunni... Spennandi alveg frá því að sýningin hófst... Spennan heldur áfram út allt verkið... Mjög flott leikmynd... Birni tókst rosalega vel upp og Sara líka... Leikararnir voru mjög sterkir... Leikstjórnin liggur vel við Mörtu...“ Lostafulli listræninginn, RUV.
"Björn Ingi er eiginmaðurinn Sævar, og hefur sjaldan eða aldrei leikið betur... vart varð á betra kosið... Afhjúpun á leyndarmáli er klassískt bragð í leikskáldskapnum. Í Fýsn er því beitt af þó nokkurri leikni." * * * (þrjár stjörnur). JVJ, DV
„ Náði ágætlega að koma innri átökum persónunnar til skila... Heildarmyndin er ágætlega heppnuð og Marta heldur vel utan um alla þræði... Þórdís Elva er án efa með okkar efnilegustu leikskáldum... hefur tilfinningu fyrir leikhúsmiðlinum... Nú verðið þið ágætu hlustendur að drífa ykkur í leikhúsið...“ Þ.E.S. Víðsjá, RÚV
"Svo byrjað sé á umgjörð þessarar sýningar þá er leikmyndin eftir Rebekku A. Ingimundardóttur ansi flott; hún samanstendur af gráleitum kubbum sem fúnkera alveg jafn vel við að gefa í skyn bar, myndlistargallerí, og rosalega móðins heimili efnafólksins Sævars og Fanneyar. Hljóðmyndin er sömuleiðis svöl; sú tónlist sem Elísabet Indra Ragnarsdóttir notar hér með smekklegum hætti er aðallega raftónlist í bland við sígildan djass eftir Davis og Gillespie."
"En ekki er það umgjörðin ein sem er vel heppnuð, því textinn virðist einnig góður og díalógin virkar eðlilega og óþvingað. Björn Ingi, Sara Dögg og Víðir Guðmundsson komast sæmilega frá sínu, en Theódór Júlíusson hefur sterkustu nærveruna; hann er afar trúverðugur sem fulltrúi og sölumaður undirheima hvatalífsins."
K.P.Ó, Kistan
