Ökutímar

Margrómuð verðlaunasýning

Okutimar

Um verkið

Fjölskylda Lillu er allt annað en venjuleg. Mamma og amma keppast við að leggja henni lífsreglurnar. En er Peck bara góður frændi þegar hann býðst til að kenna henni á bíl? Ökutímar er áleitið leikrit sem fjallar um svik, ást og fyrirgefningu og tekur á viðkvæmu máli á óvenjulegan hátt. Hér er á ferðinni margbrotin þroska- og fjölskyldusaga sem fær áhorfendur til að súpa hveljur en er þó drifin áfram af heillandi húmor.

Ökutímar voru frumfluttir í New York 1997 og fékk Pulitzer-verðlaunin 1998. Uppsetning LA hlaut afar jákvæða dóma og mikla aðsókn á Akureyri; Þröstur Leó Gunnarsson hreppti Grímuverðlaun fyrir frammisöðu sína og tónlistarkonana Lay Low hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin fyrir tónlistina í leikritinu. Lay Low tekur jafnframt þátt í sýningunni.

Uppsetning LA. Sýnd í Reykjavík á vegum Borgarleikhússins.

Sýnt í janúar á Nýja sviði í samstarfi við SÍMANN

Þröstur Leó Gunnarsson hlaut Grímuverðlaun fyrir hlutverk sitt í Ökutímum.

Lay Low hlaut Grímuverðlaun fyrir tónlistina í Ökutímum.

Filippía I Elísdóttir var tilnefnd fyrir búninga og Lay Low fyrir tónlist í verkinu.

 

Umsagnir

  • "Þetta er falleg sýning... ákaflega sterk... með því að taka Ökutíma til sýningar hefur íslenskt leikhús stigið feti framar... LA – þar sem allt blómstrar og grær... rigna yfir sýninguna stjörnum.” MK, Mbl

    „ Þetta er stórgóð sýning í einkar vel heppnaðri umgjörð” EB, Fréttablaðið

    „ LA nýtur nú vinsælda og virðingar í samfélaginu sem önnur leikhús mega öfunda það af... mjög vel unnin” JVJ, DV

    „ Ég er djúpt snortin... Stórkostlegur leiksigur... mjög áhrifamikil sýning” SLG, RÚV

    „ stórkostlegan samleik...beint í hjartastað...” IS, Kistan

    „ djúpt og áhrifamikið... rússíbanaferð... enn einn sigurinn!” VAJ, landpostur.is

    „magnaða sýningu... opnar augu og snertir, leikhús sem skiptir máli” JJ, Dagur.net

    „hittu mann beint í hjartastað... afar snjöll... Akureyringar eru öfundsverðir af þessari sýningu” SA, TMM

    „Þessi sýning nær manni svo sannarlega... lifir virkilega með manni og vekur mann til umhugsunar ... LA sýnir mikinn metnað í verkefnavali” ÞES, Víðsjá, RÚV

Um verkið

  • Frumsýning 2. maí 2009
  • Svið Nýja svið
  • Tegund Kraftmikið nútímaverk. Með tónlist.

Þetta vefsvæði byggir á Eplica