Milljarðamærin snýr aftur
Saga um græðgi, ást og hatur
Um verkið
Lítill smábær má muna fífil sinn fegurri, veisluhöldin eru búin og peningarnir á þrotum. Þegar fréttist að Milljarðamærin sé væntanleg aftur heim vaknar hjá íbúunum von um að hún láti eitthvað af auðæfum sínum renna til samfélagsins. Milljarðamærin, sem hrökklaðist úr bænum fyrir löngu með smán en auðgaðist síðan gríðarlega, lofar bæjarbúum háum fjárhæðum að uppfylltu einu skilyrði.
Kjartan Ragnarsson, sem verið hefur í fararbroddi íslenskra leikstjóra um árabil, vinnur nýja leikgerð á verkinu og stýrir glæsilegum hópi listamanna. Verk Friedrich Dürrenmatts var frumflutt árið 1956 og hefur æ síðan verið sett reglulega upp um heim allan, ,enda sagan einkar krassandi. LR sýndi leikritið árið 1965, þá undir titlinum Sú gamla kemur í heimsókn. Hér er á ferðinni leikrit sem á alltaf erindi en sjaldan meira en einmitt nú, á Íslandi árið 2008. Frumsýnt 27. febrúar á Stóra svið í samstarfi við VÍS
Aðstandendur
- Höfundur Friedrich Durrenmatt
- Leikstjórn Kjartan Ragnarsson
- Þýðing Gísli Rúnar Jónsson
- Leikmynd Gretar Reynisson
- Búningar Filippía Elísdóttir
- Lýsing Björn Bergsteinn Guðmundsson
- Tónlist Frank Þórir Hall
- Leikarar Sigrún Edda Björnsdóttir, Jóhann Sigurðarson, Hilmir Snær Guðnason, Bergur Þór Ingólfsson, Jóhanna Vigdís Arnardóttir, Hallgrímur Ólafsson, Hanna María Karlsdóttir, Theodór Júlíusson, Þröstur Leó Gunnarsson, Pétur Einarsson, Atli Þór Albertsson, Unnur Ösp Stefánsdóttir, Magnús Guðmundsson
Umsagnir
- Silja Aðalsteinsdóttir, Timariti Máls og menningar, tmm.is, var afar hrifin af sýningunni og sagði m.a.: "Sýning Kjartans Ragnarssonar leikstjóra, Gretars Reynissonar leikmyndateiknara, Filippíu Elísdóttur búningahönnuðar, Björns Bergsteins Guðmundssonar ljósahönnuðar og félaga er metnaðarfull og glæsileg. Sviðið minnir á augnstungin hús eins og við Sæbrautina í Reykjavík, og rökkrið þar inni, þótt erfitt sé fyrir augu þeirra sem sitja aftarlega, gerir eymdina áþreifanlega. Leikur er góður eins og við var að búast. Sigrún Edda er virkilega ógeðsleg í hlutverki Kamillu sem meira og minna er búin til af lýtalæknum eftir að hafa lifað af flugslys í Afganistan. Jóhann sýnir vel þróun Illuga frá borubröttum kaupmanni að örvæntingarfullum flóttamanni frá vinum, ættingjum og öðrum samborgurum. Atriðið milli þeirra tveggja, gömlu elskendanna, þegar þau rifja upp gömul kynni, einlæg mitt í öllum viðbjóðnum, snart mig verulega djúpt. Meðal annarra eftirminnilegra persóna er einkaþjónn Kamillu sem Pétur Einarsson lék, sjöundi eiginmaðurinn sem Hilmir Snær Guðnason lék (eins og þann sjötta og áttunda), og skólameistarinn í meðförum Bergs Þórs Ingólfssonar.
Milljarðamærin snýr aftur er óhugnanlega viðeigandi verk að setja upp á okkar dögum. Það leggur fyrir okkur óþægilegar siðferðilegar spurningar sem ekki er auðvelt að svara - en skylt að reyna."
Dögg Pálsdóttir sagði á bloggi sínu: "Hvers virði er hefndin? 500 milljarða króna? Hvers virði er mannslíf? 250 milljarða króna? Þessum áleitnu spurningum er varpað fram í leikritinu Milljarðamærin snýr aftur, sem frumsýnt var í Borgarleikhúsinu í kvöld. Þegar saman fer hefndarþorsti einstaklings sem á fúlgur fjár og græðgi heils bæjarfélags getur greinilega allt gerst. Milljarðamærin snýr aftur er magnað leikrit. Sigrún Edda Björnsdóttir var hreint óborganleg í hlutverði milljarðamærinnar. Jóhann Sigurðsson lýsti vel örvæntingu þess sem áttar sig á hvað framundan er. - Enn ein afbragðssýning í Borgarleikhúsinu!"
“þungaviktarverk… árangurinn er vægast sagt gróteskur… fín sýning, ljúfsár og umhugsunarverð, falleg og ljót, fyndin og harmræn.” Þorgerður E. Sigurðardóttir, Víðsjá, Rás 1, RÚV.
