Beint í leiðarkerfi vefsins.
Ein vinsælasta sýning síðasta árs
Við kynnumst þessum höfuðsnillingi íslenskrar unglingamenningar, vinum hans, óvinum, ferköntuðum kennurum, hugsjónunum, orðleikni og auðvitað bannsettri ástinni. Við fylgjumst með óborganlegum tilraunum hans til að búa til gull, fara á stefnumót, láta reka sig úr skóla og sofa hjá!
Stórsýning um brjálæðislegt dramb og fall
Magnað leikverk um ris og fall stórfyrirtækisins Enron. Hér birtist mannlega hliðin á bak við atburðina, sagan af þeim sem voru í innsta hring, en líka þeim sem stóðu utan hans. Enron er sígild saga um drauma og þrár, dramb og fall. Samhliða mannlegu átökunum í verkinu er dregin upp stórsnjöll og skörp mynd af fjármálaheiminum á aðgengilegan og hrífandi hátt.
Stórbrotin leikhúsveisla með mögnuðum listamönnum
Ofviðrið gerist á eyju, einhvers staðar og hvergi – í ríki hugarflugsins. Þar ræður ríkjum Prospero sem búið hefur í útlegð árum saman ásamt ungri dóttur sinni, skrímslinu Kaliban og Ariel þjóni sínum. Nú loks gefst tækifæri til að gera upp málin þegar ofsaveður skolar skipi þeirra sem sviku Prospero á land eyjunnar. Atburðarásin sem tekur við er fjörleg enda er uppgjör framundan, ástin kraumar og hinar líkamlegu hvatir eru sterkir drifkraftar.
Verðlaunasýningin heldur áfram á Stóra sviðinu
Fjölskyldan safnast saman á ættaróðalinu í fyrsta sinn í mörg ár. Ástæðan er dular- fullt hvarf fjölskylduföðurins. Um leið og hvarfið tekur á sig skýrari mynd koma í ljós ýmsar brotalamir í fjölskyldunni, upp koma gömul leyndarmál og það verður æ ljósara að allir hafa sinn djöful að draga.
Tveggja tíma hláturskast.
Ýmsum óþrifnaði hefur ráðherrann ungi sópað undir teppi, atvinnulygarinn sjálfur, en þó aldrei dauðum manni – og það á hótelherbergi – með viðhaldinu – sem er innsti koppur í búri stjórnarandstöðunnar. Það stóð ýmislegt til í þessu hótelherbergi en ekki þetta! Hvað gera ráðherrar nú?
Leikhúsglaðningur fyrir alla fjölskylduna
Gói og Þröstur Leó opna dyr leikhússins upp á gátt fyrir öllum landsmönnum, ungum sem öldnum, og ætlar að ferðast um töfraheim ævintýranna. Á ferðalaginu mun hann nýta til hins ýtrasta leik, söng og dans og bregða sér í allra kvikinda líki í anda furðusagnanna.
Magnaður leikhúsviðburður þar sem Eivör Pálsdóttir söngkona, Reijo Kela nútímadansari og María Ellingsen leikkona blása hvert með sínum hætti lífi í glóðir hinnar táknrænu goðsögu um Fönixinn. Áhorfendur eru leiddir inn í draumkenndan heim og upplifa sýninguna í miklu návígi við listamennina.
Ung móðir er sökuð um að hafa myrt börn sín tvö. Þó er alls ekki ljóst hvort um morð er að ræða eða sorglegt slys. Málið vekur athygli almennings og áhuga hinna ólíklegustu aðila. Leikritið er byggt á opinskáum viðtölum við alla aðila málsins. Engu hefur verið bætt við og allt er orðrétt haft eftir.
Hér tekst Vesturport á við gamanleikjaformið þar sem dyr opnast og lokast á hárréttu augnabliki, persónur birtast á óþægilegu andartaki eða yfirgefa sviðið rétt áður en allt verður óbærilega vandræðalegt. Leikarar skipta um hlutverk á ótrúlega stuttum tíma, einn ryður út úr sér orðaleikjum á meðan annar dettur á bananahýði.
Grallaralegt ævintýri fyrir stelpur og stráka
Björn vaknar einn morguninn með horn á höfðinu. Hann veit ekki af hverju hann er með horn á höfði en veit að hann langar ekki að líta út eins og geit. Því fær hann Jórunni vinkonu sína til að hjálpa sér við að rannsaka málið. Í leit sinni að sannleikanum upphefst atburðarás á mörkum ævintýris og veruleika.
Öll berum við með okkur einhverja leyndardóma. Ýmist geta þeir bugað okkur eða gefið okkur tilgang. Klúbburinn er hópur karlmanna og verk um þá. Sex listamenn ala með sér draum um að afhjúpa æðsta leyndarmál listarinnar. Samfélag, samtök, trúfélag, hljómsveit, listahreyfing, leynileg bylting ...
Ertu að spökulera að fara í leikhús?
Einkaspæjararnir óborganlegu Harry og Heimir flækjast inn í dularfullt hvarf eigin- manns hinnar undurfögru Díönu Klein. Þeir fara alla leið til Transylvaníu og þurfa að takast á við illmennið og söngleikja- nördinn Doktor Frank N. Steingrímsson.
Hér er á ferð mergjað heimildaleikhús um hinar ýmsu hliðar ættleiðinga. Sem fyrr vinna þau ekki með hefðbundnum leikurum, heldur „venjulegu“ fólki.
Lókal-leiklistarhátíðin verður haldin í Reykjavík 1. til 5. september. Væntanlegur er einn kunnasti leikhópur Þýskalands, Rimini Protokoll, með sýninguna Black Tie.
Við erum stödd í Palestínu á því herrans ári núll. Rómverjar hafa sölsað undir sig Palestínu og Heródes er settur landstjóri. Þegar spyrst út að frelsari muni fæðast í landinu gefur hann út tilskipun um að myrða skuli öll sveinbörn, tveggja ára og yngri. Ljótt er það.
Skoppa og Skrítla fá óvænta gjöf frá Lúsí – leikandi létt púsluspil. Nú reynir á hvort áhorfendur geti hjálpað þeim að leika við hvern sinn fingur, setja á sig glingur ... og hver er það sem syngur? Jú, það er bakari svakari. En ... af hverju er hann á hvolfi? Og hérna ... ræna sjóræningjar sjó? Kunna blómin virkilega að tala? Og hvers vegna segir klukkan tikk-takk, en ekki bara takk fyrir takk?
Hvernig eru afar í dag? Þeir eru á besta aldri, í góðri stöðu, búnir að ala upp börnin og geta loksins notið lífsins eftir brauðstritið. Hipparnir eru orðnir afar, þeir eiga Harley Davidson í bílskúrnum og hlusta á Bítlana. En það blasa önnur, ný og erfiðari verkefni við: Gleraugu, flóknar fjarstýringar, Viagra töflur og síðast en ekki síst – barnabörnin.
Storkurinn kemur færandi hendi og ung hjón fá uppfyllta sína langþráðu ósk um barn. En hvað verður um barnið þegar það hlýðir ekki foreldrum sínum? Hvað verður um börn sem hrekkja dýr og fólk? Eða þau sem borða ekki matinn sinn, klippa ekki neglurnar eða bora í nefið? Sum deyja, önnur brenna, einstaka komast lífs af en þeim hefnist alltaf grimmilega fyrir óknyttina.
Nýdönsk mætir áhorfendum á nýjan hátt í návígi leikhússins. Í sveitinni eru góðir sagnamenn og nú lifna sögurnar við. Hér heyrir þú sögurnar á bak við lögin og textana, skandalana og stórsigrana. Hvers vegna hætti Daníel? Og af hverju byrjaði hann aftur? Er Hólm raunverulegt ættarnafn Ólafs? Er Stefán hæsti gítarleikari í heimi?