Stóra svið

Gauragangur-450x236-new-Vignetta

Gauragangur

Ein vinsælasta sýning síðasta árs
Við kynnumst þessum höfuðsnillingi íslenskrar unglingamenningar, vinum hans, óvinum, ferköntuðum kennurum, hugsjónunum, orðleikni og auðvitað bannsettri ástinni. Við fylgjumst með óborganlegum tilraunum hans til að búa til gull, fara á stefnumót, láta reka sig úr skóla og sofa hjá!

 
Ensor_450x236_lokid

Enron

Stórsýning um brjálæðislegt dramb og fall

Magnað leikverk um ris og fall stórfyrir­tækisins Enron. Hér birtist mannlega hliðin á bak við atburðina, sagan af þeim sem voru í innsta hring, en líka þeim sem stóðu utan hans. Enron er sígild saga um drauma og þrár, dramb og fall. Samhliða mannlegu átökunum í verkinu er dregin upp stórsnjöll og skörp mynd af fjármála­heiminum á aðgengilegan og hrífandi hátt.

 
Ofvidrid_450x236_lokid

Ofviðrið

Stórbrotin leikhúsveisla með mögnuðum listamönnum

Ofviðrið gerist á eyju, einhvers staðar og hvergi – í ríki hugarflugsins. Þar ræður ríkjum Prospero sem búið hefur í útlegð árum saman ásamt ungri dóttur sinni, skrímslinu Kaliban og Ariel þjóni sínum. Nú loks gefst tækifæri til að gera upp mál­in þegar ofsaveður skolar skipi þeirra sem sviku Prospero á land eyjunnar. Atburða­rásin sem tekur við er fjörleg enda er upp­gjör framundan, ástin kraumar og hinar líkamlegu hvatir eru sterkir drifkraftar.

 
August-450x236-SL

Fjölskyldan

Verðlaunasýningin heldur áfram á Stóra sviðinu
Fjölskyldan safnast saman á ættaróðalinu í fyrsta sinn í mörg ár. Ástæðan er dular- fullt hvarf fjölskylduföðurins. Um leið og hvarfið tekur á sig skýrari mynd koma í ljós ýmsar brotalamir í fjölskyldunni, upp koma gömul leyndarmál og það verður æ ljósara að allir hafa sinn djöful að draga.

 
Nei_radherra_450x236

Nei, ráðherra!

Tveggja tíma hláturskast.

Ýmsum óþrifnaði hefur ráðherrann ungi sópað undir teppi, atvinnulygarinn sjálfur, en þó aldrei dauðum manni – og það á hótelherbergi – með viðhaldinu – sem er innsti koppur í búri stjórnarandstöðunnar. Það stóð ýmislegt til í þessu hótelherbergi en ekki þetta! Hvað gera ráðherrar nú?

 
Goi_og_aevintyrin_450x236

Eldfærin

Leikhúsglaðningur fyrir alla fjölskylduna

Gói og Þröstur Leó opna dyr leikhússins upp á gátt fyrir öllum landsmönnum, ungum sem öldnum, og ætlar að ferðast um töfraheim ævintýranna. Á ferðalaginu mun hann nýta til hins ýtrasta leik, söng og dans og bregða sér í allra kvikinda líki í anda furðusagnanna.

 
Húmanímal

Húmanímal

Húmanímal er fyrsta verk leikhópsins Ég og vinir mínir og er útgangspunktur verksins ástin og kynhvötin. Sýningin var unnin í spuna af leikhópnum og er útkoman forvitnileg og fersk sýning um mannlega hegðun; hvatirnar, lestina, hungrið og öfgarnar. Við leikum okkur að því að kryfja dýrið í manninum. Hvernig þróaðist þessi skringilega tegund? Hvaða siði og reglur hefur hún? Hvaða langanir hefur hún og hvað gerist þegar hún sleppir fram af sér beislinu?
 
Ferðalag Fönixins

Ferðalag Fönixins

Magnaður leikhúsviðburður þar sem Eivör Pálsdóttir söngkona, Reijo Kela nútímadansari og María Ellingsen leikkona blása hvert með sínum hætti lífi í glóðir hinnar táknrænu goðsögu um Fönixinn. Áhorfendur eru leiddir inn í draumkenndan heim og upplifa sýninguna í miklu návígi við listamennina.

 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica