Jesús litli

Fimm stjörnu mannbætandi upplifun

Um verkið

Gríman 2010: Leiksýning ársins

Við erum stödd í Palestínu á því herrans ári núll. Rómverjar hafa sölsað undir sig Palestínu og Heródes er settur landstjóri. Þegar spyrst út að frelsari muni fæðast í landinu gefur hann út tilskipun um að myrða skuli öll sveinbörn, tveggja ára og yngri. Ljótt er það.

Og trúðarnir dásamlegu spyrja: Hver fæðir eiginlega barn inn í slíkt ástand?
Öll vitum við að Jólaguðspjallið er einstaklega fallegt og hátíðlegt en það er ekki síður átakanlegt. Trúðarnir láta allt flakka umbúðalaust. Þeim er ekkert óviðkomandi; þeir velta við öllum steinum, snúa öllu á hvolf og segja allan sannleikann – og ekkert nema sannleikann. Jafnvel þótt hann sé grimmur. Eða fyndinn.

Jesús litli var ótvíræður sigurvegari Íslensku leiklistarverðlaunanna, Grím- unnar nú í vor. Jesús litli var valin sýning ársins og leikverkið sjálft var valið leikrit ársins auk þess sem sýningin hlaut sjö tilnefningar. Gagnrýnendur hlóðu sýninguna lofi og áhorfendur voru hrærðir og yfir sig hrifnir. Sumsé: Leikhús eins og það gerist best!

GRÍMAN 2010:
Sýning ársins
Leikskáld ársins

Umsagnir

  • " ***** Þetta er það langbesta sem sést hefur á fjölum leikhúsanna í haust."
    Jón Viðar Jónsson, DV

    "Ég skora á fólk að fara í leikhúsið og sjá Jesú litla
    - kynna sér guðfræði trúðsins og máta við sína." Guðmundur Brynjólfsson, Morgunblaðið

    "Það má gera ráð fyrir að þessi sýning Borgarleikhússins gangi lengi.
    Efniviðurinn sprottinn úr helgisögnum sem fylgt hafa þjóðinni í aldir.
    Trúaðir jafnt sem vantrúarhundar geta hlegið þar saman að frásögnum trúðanna, Barböru, Bellu og Úlfars...
    Hún [Kristjana Stefánsdóttir] leikur líka brosandi trúðinn Bellu sem leikur meðal annars Gabriel erkiengil af miklum bravúr og Benedikt Erlingssyni tekst ákaflega vel að tefla henni og hæfileikum hennar móti þrautþjálfuðum trúðunum tveimur þannig að hvorki dregur úr þéttleika sýningarinnar eða gæðum en gamanið eykst."
    María Kristjánsdóttir, eyjan.is

    "Þetta verður ómótstæðilegur kokteill sem hlægir mann og grætir og hrærir upp í tilfinningum manns svo maður verður ekki samur lengi á eftir...Hvað getur maður þá sagt að lokum annað en: Ástarþökk fyrir ógleymanlegt kvöld." Silja Aðalsteinsdóttir, Tímarit Máls og Menningar, TMM. Dóminn má sjá í heild sinni hér: http://tmm.forlagid.is/?p=1990

    "Jesús litli í Borgarleikhúsinu er algerlega geníal sýning. Að springa úr leikgleði sem helst í skefjum af augljósri alvörunni sem undir býr og birtist þegar minnst varir og nær til manns í gegnum hláturtárin sem fyrir sömu töfra breytast í annarslags tár á augabragði."
    Varríus http://varrius.blogspot.com/2009/12/jesus-christ.html

    "Trúðsleikurinn„Jesús litli” dregur jólin og boðskap þeirra úr fjarlægð og firringu glansmyndarinnar svo að þau verða nærtæk og krefjandi til afstöðu og viðbragða hér og nú enda eru áhorfendur virkir þátttakendur. Sýningin höfðar til barna sem fullorðinna og hjálpar til að hreinsa hjörtu þeirra og stilla innri strengi svo að þau megi sjá og hlýða á Guð í Jesú nafni. Trúðssýningarnar góðu í Borgarleikhúsinu eru því vegsauki og ný vídd í íslensku leiklistarlífi."
    Gunnþór Þ. Ingason http://tru.is/pistlar/2009/12/trudar-og-tru/

Um verkið

  • Lengd 75 mínútur
  • Frumsýning 5. nóvember 2010
  • Svið Litla svið
  • Tegund Trúðleikur
  • Verð 4.400

Þetta vefsvæði byggir á Eplica