Harry & Heimir

Enn veltast áhorfendur um af hlátri

Um verkið

Ertu að spökulera að fara í leikhús?
Einkaspæjararnir óborganlegu Harry og Heimir flækjast inn í dularfullt hvarf eigin- manns hinnar undurfögru Díönu Klein. Þeir fara alla leið til Transylvaníu og þurfa að takast á við illmennið og söngleikja- nördinn Doktor Frank N. Steingrímsson.

En þeir þurfa líka að kljást við skrímslið Rúrik og ekki síður að bera fram nafn þorpsins Trawitzenfikopfendorf. Já, Trawitzenfikopfendorf. En ástin lætur á sér kræla og Harry gefur Díönu auga ... innpakkað ... og Heimir spökúlerar, þó hann sé með minnsta heila í Heimi.

Áhorfendur veltust um af hlátri allt síðasta leikár með þeim félögum Erni Árna, Sigga Sigurjóns og Karli Ágústi. Sýningin var sýnd yfir hundrað sinnum fyrir troðfullu húsi. Og við ætlum að halda áfram að hlæja...

Harry og Heimir nutu fádæma vinsælda sem framhaldsþættir í útvarpi á árunum 1988–1992. Leikgerðin var frumsýnd í fyrra og sló rækilega í gegn.
Óborganlegur gamanleikur með fremstu gamanleikurum þjóðarinnar.

* * * *
PBB, Fbl.

„Þvílík snilld og þvílík skemmtun.“
SA, TMM

„Bráðfyndin, hröð og skemmtileg sýning sem á örugglega eftir að höfða til margra“
IÞ, Mbl.

„Leiksýningin Harry og Heimir er frábær, í einu orði sagt.“
HSS, Mbl.

Umsagnir

  • "Þarna er á ferð bráðfyndin, hröð og skemmtileg sýning sem á örugglega eftir að höfðatil margra... Félagarnir Karl Agúst,Sigurður og Örn fara á kostum í þessu verki... Þarna eru augljósir atvinnumenn á ferð"
    - Ingibjörg Þórisdóttir, Morgunblaðið

    "Það var mikið grín, og milli þess sem maður tók andköf af hlátri dáðist maður innilega að því hvað þeir eru fimir þessir strákar, og hvað þeir eru ótrúlega öruggir á sínu, skipta um ham örar en auga á festi aftur og aftur og aftur. Þvílík snilld og þvílík skemmtun."
    - Silja Aðalsteinsdóttir, TMM, Tímarit Máls og menningar

    "Leiksýningin Harry og Heimir er frábært, í einu orði sagt."
    Helgi Snær Sigurðsson, Morgunblaðið

    * * * * (4 stjörnur) , Páll Baldvin Baldvinsson, Fréttablaðið

Sýningar

Dagsetning & tími Svið Sýningar Ath
09. 09 2010 - kl. 20:00 Litla svið 1. kortasýning  
12. 09 2010 - kl. 20:00 Litla svið 2. kortasýning  
16. 09 2010 - kl. 20:00 Litla svið 3. kortasýning  
19. 09 2010 - kl. 20:00 Litla svið 4. kortasýning  
24. 09 2010 - kl. 20:00 Litla svið 5. kortasýning  

Um verkið

  • Frumsýning 9. september 2010
  • Svið Litla Svið
  • Tegund Gamanleikur
  • Verð 3.900

Næstu sýningar

  • 9. sep. 20:00
  • 12. sep. 20:00
  • 16. sep. 20:00
  • 19. sep. 20:00
Birta allar sýningar

Þetta vefsvæði byggir á Eplica