Afinn

Siggi Sigurjóns er Afinn

Afinn_450x236

Um verkið

Óumflýjanlegt framhald Pabbans

Hvernig eru afar í dag? Þeir eru á besta aldri, í góðri stöðu, búnir að ala upp börnin og geta loksins notið lífsins eftir brauðstritið. Hipparnir eru orðnir afar, þeir eiga Harley Davidson í bílskúrnum og hlusta á Bítlana. En það blasa önnur, ný og erfiðari verkefni við: Gleraugu, flóknar fjarstýringar, Viagra töflur og síðast en ekki síst – barnabörnin.

Einn ástsælasti leikari þjóðarinnar Sigurður Sigurjónsson birtist hér í glænýju íslensku gamanleikriti og skiptir nú um sæti við Bjarna Hauk Þórsson. Sigurður leikstýrði Bjarna í Hellisbúanum sem sló rækilega í gegn og er einn vinsælasti einleikur á Íslandi fyrr og síðar. Árið 2007 flutti Bjarni Haukur svo einleikinn Pabb­ ann, einnig í leikstjórn Sigga Sigurjóns. Eins og Pabbinn er Afinn hlýlegt gaman- verk með stórt hjarta.

„Barnabörnin eru eins og bílaleigubílar, maður fær þau tandurhrein og full af bensíni en skilar þeim grút­ skítugum með tóman tank.“

„Allt í einu er fólk sem þú þekkir bara farið að deyja, og minningargreinarnar orðnar spennandi.“

Afinn er samvinnuverkefni Borgarleikhússins og Thorsson Productions

Um verkið

  • Lengd 1 1/2 klst eitt hlé
  • Frumsýning 14. janúar 2011
  • Svið Stóra svið
  • Tegund Einleikur
  • Verð 4.400

Þetta vefsvæði byggir á Eplica