Nýdönsk í nánd

Sáldrandi brjáli sem aldrei fyrr

Nydonsk_450x236

Um verkið

Nýdönsk mætir áhorfendum á nýjan hátt í návígi leikhússins. Í sveitinni eru góðir sagnamenn og nú lifna sögurnar við. Hér heyrir þú sögurnar á bak við lögin og textana, skandalana og stórsigrana. Hvers vegna hætti Daníel? Og af hverju byrjaði hann aftur? Er Hólm raunverulegt ættarnafn Ólafs? Er Stefán hæsti gítarleikari í heimi?

Áhorfendur taka virkan þátt í sögustundinni auk þess að berja augum fágæt myndskeið með aðstoð nýjustu tækni. En auðvitað er það fyrst og fremst tónlistin sem verður allt umvefjandi fram á nótt.

Aðstandendur

  • Höfundur Nýdönsk

Um verkið

  • Lengd 90 mínútur, eitt hlé
  • Svið Litla svið
  • Tegund Tónleikur
  • Verð 4.400

Tengt efni


Þetta vefsvæði byggir á Eplica