Djúpið
einleikur eftir Jón Atla Jónasson
Um verkið
Bátur heldur úr höfn rétt fyrir dögun. Menn ýmist fleygja sér í koju eða halda sér vakandi á sígarettum, kaffi og veltingi. Enginn hefur minnsta grun um hvað er í vændum. Hér er komið nýtt, íslenskt verk sem leikhús um alla Evrópu eru nú í óða önn að tryggja sér sýningarréttinn á. Djúpið er frásögn úr íslenskum veruleika sem lætur engan ósnortinn. Þetta er óður til allra þeirra fjölmörgu, íslensku sjómanna sem í gegnum aldirnar hafa haldið á djúpið.
Verkið var heimsfrumsýnt í Oran Mor leikhúsinu í Glasgow í apríl síðastliðnum og var einn þekktasti leikari Skotlands, Liam Brennan,í aðalhlutverkinu. Viðtökur gagnrýnenda voru frábærar en Djúpið fékk fjórar stjörnur í The Scotsman. Í Borgarleikhúsinu er það stórleikarinn Ingvar E. Sigurðsson sem fer með aðalhlutverkið, en verkið var skrifað með hann í huga. Jón Atli Jónasson, höfundur verksins, þreytit hér frumraun sína sem leikstjóri.
Aðstandendur
- Höfundur Jón Atli Jónasson
- Leikstjórn Jón Atli Jónasson
- Tónlist Hilmar Örn Hilmarsson
- Lýsing Björn Bergsteinn Guðmundsson
- Leikarar Ingvar E. Sigurðsson
Umsagnir
- * * * * * (5 stjörnur)
"Það er langt síðan ég hef staðið upp jafn djúpt snortinn eftir sýningu á nýju íslensku leikriti." JVJ, DV
* * * * * (5 stjörnur) "... feikivel flutt og áhrifamikið." PBB, Fréttablaðið

