Góðir íslendingar

Hárbeitt háð fyrir íslenska þjóð

GodirIslendingar 450x236

Um verkið

Kreppan krefst nýrra leikmuna. Lopapeysur í stað jakkafata, frystikistur í stað vínkæla, tjaldvagn í stað utanlandsferða, slátur í stað lífrænt ræktaðra innbakaðra fashana. Undir yfirborðinu býr sannarlega þjóð sem á sér ýmis leyndarmál. Sjálfsmynd íslensku þjóðarinnar birtist í húsunum sem við byggðum og bílunum sem við keyrðum en líka í því hvernig við sviðsetjum okkur á veraldarvefnum og í raunveruleikanum. Nú eru þessar sviðsetningar undir smásjánni, það sem áður þótti merki um velgengni vekur nú hjá okkur óhug.

Þeir Hallur, Jón Atli og Jón Páll halda áfram þaðan sem frá var horfið í sýningunni Þú ert hér sem fékk verðskuldaða athygli á fjölum Borgarleikhússins í fyrra. Sýningin hlaut fimm Grímutilnefningar, meðal annars sem sýning ársins og leikverk ársins. Þeir félagar rýna í íslenskan samtíma og hefur sú könnun aldrei verið brýnni en einmitt nú þegar þjóðfélaginu hefur verið snúið á hvolf. Hárbeitt samtímaleikhús unnið upp úr óritskoðuðum heimildum úr lífi Íslendinga.

Umsagnir

  • "Þetta er magnaður hópur sem saman getur gert hvað sem vera skal enda er sýningin frábær. Mig langar samt til að færa Halli rauðu rósina. Hann náði makalaust – ja, eiginlega óhugnanlega einlægum tón í sögurnar sínar, til dæmis söguna af smáhundinum Sísí (eða Fífí) sem var alger gersemi."
    Silja Aðalsteinsdóttir, TMM.

    **** "Leikmyndin sem hópurinn sjálfur á heiðurinn af er jafn stór hluti
    af listaverkinu og það handrit sem liggur til grundvallar. Það er eins
    og allar greinar leikhúslistarinnar nái hér jafnvægi, bæði lýsingin og
    tónlistin í þessum keðjusöng sem ætti nú að orka sem blaut tuska í
    andlit margra því það er akkúrat ekki boðið upp á neina breytingu né
    von um breytingu, byltingu, lausn eða andlegt flug meðan einstaklingarnir eru eins og fiskar í kringlóttu fiskabúri bryðjandi eitthvert sefjandi rítalín. Þetta er hressilegri og hollari sýning en sést hefur lengi" Elísabet Brekkan, Fbl

    "Ég held, að höfundum þessa verks sé svipað innan brjósts og mér. Megi þeir halda áfram á þessari braut. Pólitísk leikverk eiga svo sannarlega erindi við þjóðina einmitt núna...
    Leikmynd, lýsing, búningar, gervi og leikur – allt tvinnast þetta saman, og ef eitthvað klikkar, þá klikkar allt. En það var enginn sjáanlegur misbrestur á
    Þrátt fyrir harðneskjuleg og tæpitungulaus skilaboð höfundanna, þá gleðjumst við yfir listrænum árangri leikenda. Svo lengi sem höfundarnir hika ekki við að taka á kýlum samtímans og ungir leikarar koma boðskapnum til skila, gagnteknir leikgleði, er ástæðulaust að örvænta. Þá er enn von." Bryndís Schram, pressan.is

    "Mér fannst sýningin frábær... rosalega djarft... mér fannst þetta alveg frábært og afskaplega vel gert... Brugðið upp mynd af algeru ráðaleysi og einmanaleika... Við sjáum okkur sjálf í þessari sýningu... algerlega frábær sýning sem við hvetjum alla til að sjá... Þessi samfélagsgagnrýni er afar kröftug" Lostafulli Listræninginn, Rás 1

    ****1/2 "Það er verið að taka okkur öll í gegní þessari sýningu - grínið fleytir kerlingar á yflrborðinu - en undiraldan segir: „Þið ættuð að
    skammast ykkar!"...Leikararnir standa sig allir frábærlega vel...Halldóra Geirharðsdóttir þarf ekki að hafa mikið fyrir því að framkalla
    hlátur áhorfenda, hún getur slengt fram margnotuðum kortum sínum vilji hún gera slíkt. En Halldóra fer ekki þá ódýru leið - hér skapar Halldóra yfirspennta, spólvitlausa týpu, sem hefur yfirfært sjálfsdýrkun sínafrá einni geðveikinni yfir á aðra." Guðmundur Brynjólfsson, Mbl


    Dómar um fyrri sýningu þríeykisins, Þú ert hér, sem frumsýnd var í mars 2009:

    „Í fyrsta skipti, svo ég muni eftir, bregst íslenskt atvinnuleikhús samstundis við atburðum sem eru að gerast í núinu.“
    María Kristjánsdóttir, Morgunblaðið

    „Pólitískt leikhús er varla til á Íslandi, ekki enn. Nýleg undantekning er sýningin Þú ert hér“ Þorvaldur Gylfason í Fréttablaðinu

    Leikstjórar og höfundar: Mindgroup (Hallur Ingólfsson, Jón Páll Eyjólfsson og Jón Atli Jónasson)
    Lýsing: Björn Bergsteinn Guðmundsson
    Leikarar: Hallur Ingólfsson, Jón Páll Eyjólfsson, Jón Atli Jónasson o.fl.

Um verkið

  • Lengd 1 klst og 40 mín
  • Frumsýning 22. janúar 2010
  • Svið Nýja svið
  • Tegund Ádeiluverk

Þetta vefsvæði byggir á Eplica