Elsku barn
Nístandi saga um sannleika og lygi
Um verkið
Ung móðir er sökuð um að hafa myrt börn sín tvö. Þó er alls ekki ljóst hvort um morð er að ræða eða sorglegt slys. Málið vekur athygli almennings og áhuga hinna ólíklegustu aðila. Leikritið er byggt á opinskáum viðtölum við alla aðila málsins. Engu hefur verið bætt við og allt er orðrétt haft eftir.
Hvert er eðli sannleikans? Veldur í raun hver á heldur? Er hægt að lifa með ófyrirgefanlegum glæp? Er hægt að hreinsa manneskju af glæp sem ekki var framinn? Hvert er gjaldið fyrir réttlæti?
Elsku barn er nístandi leikrit sem fjallar um óbærilegan sársauka og lætur engan ósnortinn. Hér er á ferð heimildaleikrit sem fjallar um tilraunir fólks til að leita sannleikans. Í þeirri mögnuðu leit komumst við á snoðir um margvíslega birtingarmynd lyginnar.
Dennis Kelly (1970) er í hópi fremstu leikskálda Breta um þessar mundir og hefur á undanförnum árum fest sig í sessi sem eitt áhugaverðasta leikskáld Evrópu. Frá árinu 2003 hefur hann skrifað alls átta leikrit, m.a. Love and Money sem var tilnefnt til Olivier verðlaunanna og Mun aðarlaus sem sýnt var hér á landi síðasta vetur við góðar undirtektir.
Aðstandendur
- Höfundur Dennis Kelly
- Þýðing Hafliði Arngrímsson
- Leikstjórn Jón Páll Eyjólfsson
- Leikmynd Ilmur Stefánsdóttir
- Búningar Ilmur Stefánsdóttir
- Lýsing Þórður Orri Pétursson
- Tónlist Hallur Ingólfsson, Hallur Ingólfsson
- Hljóð Ólafur Örn Thoroddsen, Ólafur Örn Thoroddsen
- Leikarar Unnur Ösp Stefánsdóttir, Halldóra Geirharðsdóttir, Benedikt Erlingsson, Hallgrímur Ólafsson, Nína Dögg Filippusdóttir, Valur Freyr EInarsson
Umsagnir
- ★★★★ E.B. Fbl.
"Niðurstaða: Frábær sýning! ... Í þessu áleitna verki kemur leikstjórinn Jón Páll Eyjólfsson því til skila hversu skýra sýn hann hefur á viðfangsefnið. Það léku allir fantavel og greinilegt að leikstjórnarhluti verksins var skýr." E.B. Fréttablaðið
"vil ég hvetja áhugamenn um leikhús til að missa ekki af þessari sýningu, einkum fyrir frábæran leik og óvænt sviðsumhverfi." S.A. tmm.is
"Unnur Ösp slær loksins í gegn (að mínu viti) í hlutverki þessarar umkomulausu stúlku. Hún er svo sannfærandi , svo einlæg og heiðarleg, að unun er á að horfa. Hún gefur sig algerlega á vald hlutverkinu og upplifir Donnu frá innstu hjartans rótum... Halldóra Geirharðsdóttir klikkar auðvitað aldrei, en í hlutverki Lynn, móður Donnu, er hún aldeilis óborganleg... Hallgrímur Ólafsson lætur lítið yfir sér, en hann er ómótstæðilegur í hlutverki fyrrum eiginmanns Donnu. Heiðarlegur og einlægur alveg eins og hún. Það var í eina skiptið, sem ég grét á sýningunni, þegar ég heyrði hann svara áleitnum spurningum höfundarins. Mikið átti hann bágt, blessaður drengurinn. Alveg ekta...Jón Páll Eyjólfsson er greinilega efnilegur leikstjóri.. Honum virðast takast að fá það besta út úr hverjum og einum, án þess að hver skyggi á annan. Og þá hefur ekki lítið áunnist. Það er gleðiefni, að hæfileikafólk er að snúa sér æ meir að leikstjórn, því að það er sama hversu góður leikari maður er, ef heildarmyndin klikkar, þá er til einskis unnið." B.S. Pressan.is
