Eldhaf

Magnað og spennuþrungið leikrit

vinetta_eldhaf

Um verkið

„Handan þagnarinnar leynist hamingjan“

Kona deyr á sjúkrahúsi. Börn hennar, tvíburarnir Símon og Janine, eru boðuð á fund lögfræðings vegna erfðaskrár móður þeirra. Hann afhendir þeim sitt hvort umslagið frá móðurinni og segir það hinstu ósk hennar að tvíburarnir afhendi umslögin í eigin persónu. Annað á að færa bróður þeirra sem þau vissu ekki að væri til og hitt föður þeirra sem þau töldu látinn.

Systkinin halda með umslögin í óvenjulega ferð sem afhjúpar þeim áður ókunna fortíð móður þeirra og hræðilegt leyndarmál. Eldhaf er stór saga um alvöru fólk, harmleikur um fortíðina sem skapar nútímann.

Wajdi Mouawad (1968) er fæddur í Líbanon en flúði með foreldrum sínum til Parísar og býr nú í Montréal í Kanada þar sem hann starfar sem leikari, leikstjóri, leikhússtjóri og leikskáld. Eldhaf er hans þekktasta verk, hefur verið þýtt á tuttugu tungumál, farið sigurför um heiminn og verið sýnt í yfir 100 uppsetningum á síðustu árum. Kvikmyndin sem gerð var upp úr leikritinu hefur hlotið einróma lof og fjölda verðlauna.

Úr erlendum dómum:

„Eitt stórfenglegasta leikrit síðustu ára, yfir- gnæfir jafnvel stærstu harmleiki sögunnar.“
Neue Presse

„Ofbeldi dregur fólk niður í svaðið og drepur, en mannúðin lifir. Ef til vill barnslegur boð- skapur en höfðar beint til hjartans í þessu stórfenglega leikriti.“
Frankfurter Rundschau

„Aðeins eitt að gera: Horfa, njóta en vera jafnframt viðbúinn að upplifa hrylling sem fá hnakkahárin til að rísa.“ Børsen
„Leiklist í hæstu hæðum – of mikilvægt til að láta fram hjá sér fara. Söguþráðurinn svo ótrúlega magnaður og einstakur að ekki er hægt annað en láta hrífast.“

Information

Umsagnir

  • „Eldhaf er spennandi og ágengt verk sem fjallar um mikilvægt efni … leikstjóri og aðrir aðstendur [eiga] skilið lof.“
    SV - Mbl

    „[Það] var aðdáunarvert að fylgjast með Unni Ösp sýna okkur Nawal á ólíkum æviskeiðum … Jón Páll Eyjólfsson leikstjóri hikar ekki við að ganga brautina sem höfundur markar og bendir okkur með því á að ef við látum berast á straumi skáldskaparins og leyfum okkur að finna til með öðru fólki þá verðum við betri manneskjur eftir.“
    SA, tmm

    „Einstaklega vel gerð, nýstárleg og spennandi sýning … verk sem lætur engan ósnortinn.“
    EB, Fréttablaðið

    „Eldhaf er áhugaverð sýning og safaríkt verk … heildarmyndin eftirminnileg og vönduð.“
    SG, Víðsjá

Sýningar

Dagsetning & tími Svið Sýningar Ath
23. 02 2012 - kl. 20:00 Nýja svið 11. kortasýning  
24. 02 2012 - kl. 20:00 Nýja svið 12. kortasýning  
25. 02 2012 - kl. 20:00 Nýja svið aukasýning  
26. 02 2012 - kl. 20:00 Nýja svið aukasýning  
29. 02 2012 - kl. 20:00 Nýja svið 13. kortasýning  
01. 03 2012 - kl. 20:00 Nýja svið 14. kortasýning  
02. 03 2012 - kl. 20:00 Nýja svið 15. kortasýning  
04. 03 2012 - kl. 20:00 Nýja svið 16. kortsýning  
07. 03 2012 - kl. 19:00 Nýja svið sýning  
08. 03 2012 - kl. 20:00 Nýja svið sýning  
09. 03 2012 - kl. 20:00 Nýja svið sýning  
11. 03 2012 - kl. 20:00 Nýja svið sýning  
15. 03 2012 - kl. 20:00 Nýja svið sýning  
18. 03 2012 - kl. 20:00 Nýja svið sýning  

Um verkið

  • Frumsýning 26. janúar 2012
  • Svið Nýja svið
  • Tegund Drama
  • Verð 4.400

Næstu sýningar

  • 23. feb. 20:00
  • 24. feb. 20:00
  • 25. feb. 20:00
  • 26. feb. 20:00
Birta allar sýningar

Tengt efni


Þetta vefsvæði byggir á Eplica