Umfjöllun frá áhorfanda af smugan.is
4 / 5
Rústað
Höfundur: Sarah Kane
Leikstjóri: Kristín Eysteinsdóttir.
Aðalhlutverk: Ingvar E. Sigurðsson, Kristín Þóra Haraldsdóttir, Björn Thors.
Sýnt í Borgarleikhúsinu.
Sarah Kane og In-Yer-Face leikhúsið
Eftir Unu Þorleifsdóttur
Sjaldan eða aldrei hefur ungt leikskáld vakið jafn mikla athygli, bæði
innan menningarumræðunnar sem og í fjölmiðlum almennt, og Sarah Kane
gerði með frumraun sinni Rústað. Verkið var frumsýnt 12. janúar 1995 í
Royal Court Upstairs leikhúsinu, og varð það samstundis eitt
umtalaðasta sviðsverk síðari ára. Rústað hlaut einhverja þá
árásagjörnustu gagnrýni sem sést hafði í breskum fjölmiðlum í áratugi.
EFtir Mark Ravenhill
Sarah Kane var samtímaskáld með tilfinningu fyrir hinu sígilda og bjó
þannig til leikhús fegurðar og grimmdar, leikhús sem maður bar
óttablandna virðingu fyrir. Þeir hefðu þekkt þessa tilfinningu,
Shakespeare, Sófókles og Racine. En hún var stuðandi fyrir
nútímaáhorfendur og óskiljanleg fyrir suma gagnrýnendur. Í augum þeirra
sem vanir eru þjóðfélagslegri eða sálfræðilegri skemmtun í leikritum
var gróf fegurð leikrita Kane áfall fyrir kerfið.
Að loknu námi í leikritun við háskólann í Birmingham, sem hún segir að
hafi næstum gert út af við sig sem leikskáld, kom Sarah Kane vorið 1995
eins og stormsveipur inn í leikhúslífið í London þegar Rústað var
frumsýnt í Royal Court-leikhúsinu. Leikritið er hryllileg dæmisaga um
áhrif nútímalegs stríðs á þrjár manneskjur á hótelherbergi í Leeds. Hún
lét ekki draga úr sér kjarkinn þrátt fyrir dómhörku gagnrýnenda heldur
hélt áfram og leikstýrði öðru leikriti sínu Ást Fedru í Gate-leikhúsinu
í maí 1996.