Stóra svið

Enron_450x236

Enron

Stórsýning um brjálæðislegt dramb og fall

Magnað leikverk um ris og fall stórfyrir­tækisins Enron. Hér birtist mannlega hliðin á bak við atburðina, sagan af þeim sem voru í innsta hring, en líka þeim sem stóðu utan hans. Enron er sígild saga um drauma og þrár, dramb og fall. Samhliða mannlegu átökunum í verkinu er dregin upp stórsnjöll og skörp mynd af fjármála­heiminum á aðgengilegan og hrífandi hátt.

 
Gauragangur-450x236-new-Vignetta

Gauragangur

Ein vinsælasta sýning síðasta árs
Við kynnumst þessum höfuðsnillingi íslenskrar unglingamenningar, vinum hans, óvinum, ferköntuðum kennurum, hugsjónunum, orðleikni og auðvitað bannsettri ástinni. Við fylgjumst með óborganlegum tilraunum hans til að búa til gull, fara á stefnumót, láta reka sig úr skóla og sofa hjá!

 
r&jlokid

Rómeó og Júlia - Vesturport

Árið 2002 frumsýndi Vesturport Rómeó og Júlíu á Litla sviði Borgarleikhússins. Sýningin sló í gegn og markaði hún upp hafið að glæstu gengi leikhópsins. Síðan hefur sýningin ferðast víða um heim og hlotið mikla athygli, enda uppsetningin mikið sjónarspil þar mætast sirkus og leikhús með nýjum hætti.

 
Ofvidrid_450x236

Ofviðrið

Stórbrotin leikhúsveisla með mögnuðum listamönnum

Ofviðrið gerist á eyju, einhvers staðar og hvergi – í ríki hugarflugsins. Þar ræður ríkjum Prospero sem búið hefur í útlegð árum saman ásamt ungri dóttur sinni, skrímslinu Kaliban og Ariel þjóni sínum. Nú loks gefst tækifæri til að gera upp mál­in þegar ofsaveður skolar skipi þeirra sem sviku Prospero á land eyjunnar. Atburða­rásin sem tekur við er fjörleg enda er upp­gjör framundan, ástin kraumar og hinar líkamlegu hvatir eru sterkir drifkraftar.

 
Nei_radherra_450x236

Nei, ráðherra!

Fyndnara en Fló á skinni

Ýmsum óþrifnaði hefur ráðherrann ungi sópað undir teppi, atvinnulygarinn sjálfur, en þó aldrei dauðum manni – og það á hótelherbergi – með viðhaldinu – sem er innsti koppur í búri stjórnarandstöðunnar. Það stóð ýmislegt til í þessu hótelherbergi en ekki þetta! Hvað gera ráðherrar nú?

 
August 450x236

Fjölskyldan

Verðlaunasýningin heldur áfram á Stóra sviðinu
Fjölskyldan safnast saman á ættaróðalinu í fyrsta sinn í mörg ár. Ástæðan er dular- fullt hvarf fjölskylduföðurins. Um leið og hvarfið tekur á sig skýrari mynd koma í ljós ýmsar brotalamir í fjölskyldunni, upp koma gömul leyndarmál og það verður æ ljósara að allir hafa sinn djöful að draga.

 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica