Faust

Magnað meistaraverk og NIck Cave

Faust 450x236

Um verkið

Faust er kominn á efri ár þegar hann uppgötvar að hamingjan verður ekki höndluð með lestri bóka eingöngu. Mefistó freistar hans og segist geta kynnt hann fyrir sannri hamingju í hinu ljúfa lífi skemmtunar og nautna. Faust tekur boðinu og handsalar veðmálið; finni hann hamingjuna undir handleiðslu Mefistós, þá eignast djöfullinn sál hans. Veðmálið verður þó fyrst tvísýnt þegar Faust kynnist hinni hreinu, saklausu Grétu sem er dregin inn í eilífa baráttu góðs og ills.

Magnað verk um öflin sem takast á í manninum og heiminum, um hreina ást, sanna hamingju og eilífa leit. Sagan af Faust er aldagömul enda hefur fjöldinn allur af útgáfum verið sviðsettur, kvikmyndaður og sunginn. Þekktust er líklega leikrit Goethe. Aðrar útgáfur eru t.d. leikrit eftir Christopher Marlow og skáldsögur Thomas Mann, Doktor Faustus og Mikhail Bulgakov, Meistarinn og Margaríta. Fjörtíu ár eru síðan sagan um Faust fór síðast á leiksvið á Íslandi og því tímabært að nýjar kynslóðir fái að kynnast þessari mögnuðu sögu.

Leikstjóri sýningarinnar er Gísli Örn Garðarsson og mætir hann hér aftur með sjálfan Nick Cave sér við hlið sem semur tónlist og söngtexta fyrir sýninguna ásamt Warren Ellis. Samstarf Borgarleikhússins, Gísla Arnar og félaga hans í Vesturporti hefur borið ríkulegan ávöxt enda hafa fyrri samstarfssýningar leikhúsanna ferðast víða um heim á undanförnum árum. Nægir þar að nefna Rómeó og Júlíu, Woyzeck og Kommúnuna.

Umsagnir

  • ****1/2 "Þessi sýning hefur allt sem þarf til að skapa vel heppnað og eftirminnilegt leikhúsverk"
    IÞ, Mbl

    **** "Það er langt síðan Þorsteinn Gunnarsson hefur sést í burðarhlutverki á við þetta. Tuggan, hann hefur engu gleymt, á hér
    við, fyrir svo utan að hann smýgur léttilega inn í nýstárlegan leikstíl og er áberandi best talandi leikarinn í sýningunni.
    Niðurstaða: Vesturportshópurinn skemmtir áhorfendum með loftfimleikum en hefði mátt vinna meira úr þessu klassíska verki til umhugsunar og lærdóms. Hljóðmyndin og tónlistin eru ekki síður í mögnuðu hlutverki og áhrif þessara þátta mikill til þess að skapa heildar sirkusstemningu sem óneitanlega ríkti,
    einkum eftir hlé."
    EB, Fbl

    ***1/2 "Sýning sú sem þeir bjóða upp á, er í þeim anda Vesturports sem er okkur orðinn næsta kunnuglegur: loftfimleikar og skemmtilegar tæknibrellur
    í bland við ljóðrænni kafla." JVJ, DV

    "Leikurinn er afbragðsgóður. Þar keppa þeir um fyrsta sætið Þorsteinn Gunnarsson og Hilmir Snær Guðnason sem leikur Mefistó, báðir sýna snilli sína af nautn...
    Það fóru fleiri fram úr sjálfum sér. Svið Axels Hallkels Jóhannessonar er mikið kúnstverk og eins gott að lýsa því ekkert nánar – sjón er sögu ríkari. Lýsing, hljóðmynd og leikgervi, hvergi vantaði upp á. Tónlist Nicks Cave og Warren Ellis er svo kapítuli út af fyrir sig og hygg ég að engum áhorfanda gleymist djöfullegur söngur Hilmis Snæs í hápunkti sýningarinnar.
    “Þetta er teater,” sagði Sveinn Einarsson ánægður í hléi. Ég geri þau orð að mínum." SA, TMM

    "Sýningin var magnþrungin ekki síst fyrir beitingu ljósa, rimla, neta og hengilása, sem hvirfluðust um salinn og brutu niður hin
    hefðbundnu mörk leikhússins.
    Leikendur æddu um hvolfið yfir höfðum okkar, dunkuðu í netið eins og skotnar gæsir eða eins og púkar á fjósbita.
    Það hefði mátt halda, að þeir væru allir ballettdansarar eða hefðu unnið í sirkus frá barnsaldri. Þarna voru í hópnum að vísu tveir íþróttamenn, sem sýndu framúrskarandi fimi, þau Svava Björg Örlygsdóttir og Jóhannes Níels Sigurðsson.

    Það er ekki hægt að ljúka þessum pistli um Faust í Borgarleikhúsinu án þess að fara orðum um umgerðina alla, aðbúnaðinn, búninga, hljóð og lýsingu. Manni skilst, að það sé annað leikrit í gangi aksviðs, þar sem sviðsmenn leika í myrkrinu á móti leikurunum og sjá um, að ekkert fari úrskeiðis. Það er ekki lítið traust, sem þeim er sýnt við þessar aðstæður. Og ekkert klikkaði á frumsýningu. Allt rann hnökralaust, jafnvel ljúflega. Þetta var geggjuð flott sýning, eins og gelgjan sagði. Og hvað viljið þið meira?" BS, pressan.is

    "Afar áhrifamikið og kom mjög vel út...
    Leikur Þorsteins og Hilmis er alveg hreint einstakur.
    Framúrskarandi leikur... Mjög vönduð sýning á allan hátt..."
    Úr Lostafulla Listræningjanum, Rás 1

Sýningar

Dagsetning & tími Svið Sýningar Ath
13. 03 2010 - kl. 20:00 Stóra svið sýning  
14. 03 2010 - kl. 20:00 Stóra svið sýning  
20. 03 2010 - kl. 20:00 Stóra svið sýning  
28. 03 2010 - kl. 20:00 Stóra svið sýning  
11. 04 2010 - kl. 20:00 Stóra svið Faust  
15. 04 2010 - kl. 20:00 Stóra svið Faust  
18. 04 2010 - kl. 20:00 Stóra svið Faust  
24. 04 2010 - kl. 20:00 Stóra svið sýning  
25. 04 2010 - kl. 20:00 Stóra svið sýning  

Um verkið

  • Lengd ca. 2 klst með hlé
  • Frumsýning 15. janúar 2010
  • Svið Stóra svið
  • Tegund Klassík

Næstu sýningar

  • 13. mar. 20:00
  • 14. mar. 20:00
  • 20. mar. 20:00
  • 28. mar. 20:00
Birta allar sýningar

Þetta vefsvæði byggir á Eplica