Fjölskyldan
Sannkölluð leikhúsveisla!
Um verkið
Ættfaðirinn hverfur sporlaust og fjölskyldan safnast saman á óðalinu. Smám saman tekur hvarfið á sig skýrari mynd en um leið leita gömul leyndarmál og heitar ástríður upp á yfirborðið. Fjölskyldumeðlimir hafa hver sinn djöful að draga og við svo eldfimar aðstæður tekur atburðarásin óvænta stefnu. Sýning sem hlotið hefur einróma lof áhorfenda og gagnrýnenda.
Safarík og stórbrotin fjölskyldusaga sem gagnrýnendur hafa kallað fyrstu klassík 21. aldarinnar. Sýning sem minnir í senn á dramatísk leikverk Tennessee Williams og kaldhæðni Woody Allen. Tónlist KK fullkomnar leikhúsveisluna.
Tracy Letts (1965) er eitt fremsta leikskáld Bandaríkjanna nú um stundir. Hann starfar við hið víðfræga Steppenwolf-leikhús í Chicago sem leikskáld, leikstjóri og leikari. Fyrsta leikrit hans, Killer Joe, var sýnt hér í Borgarleikhúsinu. Fjölskyldan – ágúst í Osagesýslu hlaut þrenn eftirsóttustu leiklistarviðurkenningar Bandaríkjamanna: Drama Desk, Pulitzer og loks Tony-verðlaunin sem besta leikrit ársins 2008. Leikritið hefur verið sýnt óslitið á Broadway frá frumsýningu og fjöldi fremstu leikhúsa heimsins hefur tekið það til sýninga.
Sýningin er þrír þættir, hver um ein klst að lengd. Hlé er eftir 1. og 2. þátt
Áhorfendum býðst að kaupa smurbrauðsplatta sem bíður í fyrra hléi. Pantanir teknar fyrir sýningu.
Fjölskyldan kveðjur 27. mars 2010 - sýningin snýr aftur næsta vetur.
Aðstandendur
- Höfundur Tracy Letts
- Þýðing Sigurður Hróarsson
- Leikstjórn Hilmir Snær Guðnason
- Leikmynd Börkur Jónsson
- Búningar Margrét Einarsdóttir
- Lýsing Björn Bergsteinn Guðmundsson
- Tónlist Kristján Kristjánsson
- Leikgervi Sigríður Rósa Bjarnadóttir
- Hljóð Jakob Tryggvason
- Leikarar Margrét Helga Jóhannsdóttir, Sigrún Edda Björnsdóttir, Ellert A. Ingimundarson, Guðrún Bjarnadóttir, Pétur Einarsson, Jóhanna Vigdís Arnardóttir, Nína Dögg Filippusdóttir, Hanna María Karlsdóttir, Theodór Júlíusson, Hallgrímur Ólafsson, Unnur Ösp Stefánsdóttir, Þröstur Leó Gunnarsson, Rúnar Freyr Gíslason
Umsagnir
- „Stjörnuleikur sem endar með flugeldasýningu“ Bryndísar Schram pressan.is
„eitt besta leikrit síðustu ára... Mjög skemmtilegt kvöld og afar kröftug sýning... Leikararnir standa sig allir með frábærlega vel... Margrét Helga brillerar“ Lostafullu listræninginn, RUV.
"unnin af mikilli og aðdáunarverðri fagmennsku" María Kristjánsdóttir, eyjan.is: http://eyjan.is/blog/2009/11/01/leikdomur-um-fjolskylduna-i-borgarleikhusinu-eitthvad-fyrir-alla/
„heildarsvipurinn er góður og stemning í sýningunni hæfileg blanda trega og léttleika... Leikstjóra og leikhópi tekst að gera býsna þétta sýningu... Unnendur sígildra efnistaka og vandaðrar leiktúlkunar komast svo sannarlega í feitt í þessari sýningu og eiga eflaust eftir að njóta vel“ Þorgerður E. Sigurðardóttir, Víðsjá RUV
“sigur leikstjórans Hilmis Snæs sem fær þetta til að virka svona skínandi vel.” Jón Viðar Jónsson, DV
"Leiksigrar vinnast sjaldan í kippum. Því er gaman að verða vitni að því þegar slíkt gerist...Stjörnurnar skína á Stóra sviði Borgarleikhússins, 13 stykki plús hinar..." Guðmundur S. Brynjólfsson, Mbl.
Takk þið fallega og stórkostlega fólk innra sem ytra fyrir mig í kvöld, ég vona að englarnir skili til ykkar öllum þeim þökkum sem þið eigið skilið fyrir þessa leiksýningu.
Og ekki má gleyma að leikstjóra ber líka að þakka fyrir mjög svo vel unnið verk og virðingavert.
Kollsterinn http://kollster.123.is/
Pulitzer verðlaun: Besta leikrit ársins 2008
Tony verðlaun: Besta leikrit ársins 2008
Drama Desk verðlaun: Besta leikrit ársins 2008
----
Um leikverkið í erlendum miðlum:
* * * * * (5 stjörnur)
Sunday Telegraph
* * * * * (5 stjörnur)
Sunday Express
* * * * * (5 stjörnur)
Independent
* * * * * (5 stjörnur)
What's On
"... leiksýning ársins, jafnvel ævinnar" Mail on Sunday
"... sennilega mest spennandi leikrit sem sést hefur á Broadway í áraraðir" The New York Times
Sýningar
| Dagsetning & tími | Svið | Sýningar | Ath |
|---|---|---|---|
| 12. 03 2010 - kl. 19:00 | Stóra svið | sýning | |
| 27. 03 2010 - kl. 19:00 | Stóra svið | sýning |
