íD Endalaus
Febrúarsýning Íslenska dansflokksins
Um verkið
Fallegt og tilfinningaríkt verk eftir verðlaunadanshöfund
Þann 4. Febrúar frumsýnir Íslenski dansflokkurinn nýtt verk eftir Alan Lucien Öyen, ungan norskan danshöfund sem hefur unnið til fjölda verðlauna fyrir verk sín. Alan hefur getið sér gott orð fyrir falleg, tilfinningarík og ljóðræn verk með djúpri innri merkingu. Alan notar talað orð og myndbandsverk í dansverkinu og skapar sérstakan söguþráð í anda heimildarmyndar. Okkur eru birt brot úr hugsunum, endurminningar um horfna ástvini.
"Hvað hverfur og hvað situr eftir í minningunni þegar samband tveggja einstaklinga rofnar. Þegar þú og ég erum ekki lengur við." "Hver saga hefur jafn margar hliðar og þátttakendurnir. Við færum okkur nokkra metra til vinstri og hlutirnir horfa öðruvísi við " Tónlistin í verkinu er eftir Ólaf Arnalds sem hefur þrátt fyrir ungan aldur selt þúsundir hljómplatna og fyllt tónleikahallir víða um heim, þar á meðal Barbican Hall í London. Tónlist Ólafs færir mann í aðrar hæðir með viðkvæmum, rómantískum og sinfónískum tónsmíðum. Ólafur byggir brú á milli klassískrar tónlistar og pop tónlistar þar sem hann blandar saman píanói og strengjahjóðfærum við rafræn hljóð og trommutakta.
Sýnt á Stóra sviðinu: 4/2 7/2 14/2 21/2 28/2 og 7/3

