Galdrakarlinn í Oz
Ævintýri í öllum regnbogans litum
Um verkið
Galdrakarlinn í OZ er einn vinsælasti fjölskyldusöngleikur allra tíma. Sígilt ævintýri um Dóróteu sem leggur upp í langferð til Gimsteinaborgarinnar handan regnbogans. Raunveruleikinn er grár og tilbreytingarlaus, fólk vinnur mikið og brosir sjaldan. Dórótea þráir eitthvað annað, stórkostlegra og ævintýralegra, hana dreymir um landið handan regnbogans.
Dag nokkurn gerir ofsaveður og hvirfilbylur feykir henni til ævintýralandsins Oz þar sem allt getur gerst. Dórótea er þó ekki fyrr komin en hún uppgötvar að hana langar aftur heim. Aðeins Galdrakarlinn í Gimsteinaborg getur hjálpað henni þangað.
Á leið sinni til hans eignast hún þrjá vini, fuglahræðuna sem hefur engan heila, ljónið sem skortir hugrekki og tinkarlinn sem vantar hjarta. Saman lenda þau í ótal skemmtilegum en hættulegum ævintýrum þar sem við sögu koma góða Norðannornin, vonda Austannornin og urmull af vættum og kynjaverum; valmúar, snjófólk, landsfeður, krútt, pússarar, töffarar, vinkar, draugar, tjúttarar, handsnyrtar og fiðlarar.
Ævintýrið um Galdrakarlinn í Oz er í tölu frægustu og útbreiddustu barnabóka heims. Höfundurinn Frank Baum (1856–1919) skrifaði fjölda bóka um landið Oz og íbúa þess. Það jók enn á frægð Galdrakarlsins í Oz þegar
Hollywood gerði söngvamynd árið 1939 eftir sögunni. Myndin var ein fyrsta litkvikmyndin í Hollywood og skaut hinni 16 ára Judy Garland eftirminnilega upp á stjörnuhimininn.
Aðstandendur
- Höfundur Frank Baum
- Þýðing Bergur Þór Ingólfsson
- Leikstjórn Bergur Þór Ingólfsson
- Leikmynd Snorri Freyr Hilmarsson
- Búningar Helga I. Stefánsdóttir
- Lýsing Þórður Orri Pétursson
- Tónlist Harold Arlen
- Söngtextar E. Y. Harburg
- Tónlistarstjórn Kristjana Stefánsdóttir
- Hljóð Thorbjørn Knudsen
- Danshöfundur Katrín Ingvadóttir
- Leikarar Lára Jóhanna Jónsdóttir, Hilmar Guðjónsson, Þórir Sæmundsson, Halldór Gylfason, Jóhanna Vigdís Arnardóttir, Jóhann Sigurðarson, Katla Margrét Þorgeirsdóttir, Þórhallur Sigurðsson (Laddi)
Umsagnir
- „Vel heppnuð jölskyldusýning
... krafturinn og gleðin sem stafaði af sviðinu
gerði gæfumuninn“ – I.G. Mbl.
★ ★ ★ ★
„Óhætt að lofa margbreytilegri og góðri
skemmtun“ – E.B. Fbl.
„Kraftmikil og skemmtileg sýning sem
óhætt er að mæla með“ H.V.H. eyjan.is
„Mikil leikhúsveisla þar sem öll brögð leikhússins,
forn og ný, eru nýtt undir hugmyndaríkri
stjórn Bergs Þór Ingólfssonar“
– S.A. tmm.is
„Alveg ótrúlegt sjónarspil, ...Bergur, Kristjana
og Katrín eru að gera eitthvað alveg nýtt með
stemmingunni sem þau ná fram“
– M.K. Djölaeyjan, RÚV
★ ★ ★ ★ ★
Þessi sýning hefur allt til alls og rígheldur meira að segja athygli allra yngstu gestanna. Ég er yfir mig hrifin af Oz.
Sýningar
| Dagsetning & tími | Svið | Sýningar | Ath |
|---|---|---|---|
| 25. 02 2012 - kl. 14:00 | Stóra svið | sýning | |
| 26. 02 2012 - kl. 14:00 | Stóra svið | sýning | |
| 04. 03 2012 - kl. 14:00 | Stóra svið | sýning | |
| 11. 03 2012 - kl. 14:00 | Stóra svið | sýning | |
| 18. 03 2012 - kl. 14:00 | Stóra svið | sýning | |
| 25. 03 2012 - kl. 14:00 | Stóra svið | sýning | |
| 31. 03 2012 - kl. 14:00 | Stóra svið | sýning |
