Fanný & Alexander
Stórbrotin fjölskyldusaga
Um verkið
Árið er 1927 og jólunum er fagnað hjá Ekdahl-stórfjölskyldunni. Þar er dansað, leikið og sungið. Fjölskyldan er langt frá því að vera fullkomin en hún er lifandi, ástríðufull og litrík – sérstaklega í augum barnanna Fannýjar og Alexanders. Þau alast upp í hlýjum faðmi ástríkra foreldra, Emilíu og Óskars, þar sem gleði, frelsi og umburðarlyndi ráða ríkjum.
Dag einn umturnast veröld barnanna þegar faðirinn fellur óvænt frá. Í sorg sinni leitar Emilía stuðnings Edvards biskups sem áður en langt um líður ber upp bón- orð við ekkjuna. Fljótlega vaknar hún upp við þann vonda draum að heimili biskups reynist ekki það skjól sem hún þráði.
Einn fremsti kvikmyndaleikstjóri heims, Ingmar Bergman (1918–2007) vann upphaflega að þessari ógleymanlegu fjölskyldusögu í framhaldsþáttum fyrir sjónvarp en stytti síðan í kvikmynd árið 1982. Myndin var kveðjumynd hans og þakklæti til leikhússins þar sem andi Hamlets svífur yfir vötnum með afturgöngum og týndri föðurímynd. Myndin hlaut fern Óskarsverðlaun sem er fáheyrt fyrir mynd sem ekki er á ensku.
Heimsfrumsýning leikritsins var í Þjóðleikhúsi Norðmanna í Ósló í desember 2009 og er uppfærslan þegar orðin sú vinsælasta í sögu leikhússins. Verkið hefur einnig notið ómældra vinsælda í Finnlandi og Danmörku og er væntanleg á fjalir virtra leikhúsa víða um heim.
Aðstandendur
- Höfundur Ingmar Bergman
- Þýðing Þórarinn Eldjárn
- Leikstjórn Stefán Baldursson
- Leikmynd Vytautas Narbutas
- Búningar Þórunn Sigríður Þorgrímsdóttir
- Lýsing Björn Bergsteinn Guðmundsson
- Tónlistarstjórn Jóhann G. Jóhannsson
- Leikarar Hilmar Guðjónsson, Isabella Rós Þorsteinsdóttir, Kristbjörg Kjeld, Þröstur Leó Gunnarsson, Halldóra Geirharðsdóttir, Jóhann Sigurðarson, Jóhanna Vigdís Arnardóttir, Theodór Júlíusson, Charlotte Bøving, Gunnar Eyjólfsson, Rúnar Freyr Gíslason, Katla Margrét Þorgeirsdóttir, Hallgrímur Ólafsson, Elma Lísa Gunnarsdóttir, Halldór Gylfason, Kristín Þóra Haraldsdóttir, Margrét Ákadóttir, Isabella Rós Þorsteinsdóttir, Katrín Ynja Hrafnkelsdóttir, Kristjana Ósk Kristinsdóttir
Umsagnir
- Silja Aðalsteinsd. tmm.is:
„Hér hefur tekist firnavel til... hér er líka meistaralega leikið...sannkölluð skrautsýning en afar smekkleg og stílhrein...Sýningin er full af lífi, fjöri og fegurð svo að fólk á öllum aldri getur notið og geymt í hjarta sínu um ókomna tíð.“
Hlín Einars, bleikt.is
„Stórbrotið leikhús...ef þú sérð aðeins eina sýningu á þessu leikári, kíktu þá á þessa. Leikhús í hæsta gæðaflokki. Fullt hús!“
Bryndís Schram, Rás 2
„Mikið teater...og leikararnir gera þetta allir frábærlega vel...engin misfella...hugljúft, fallegt kvöld - eins og konfektmoli.“
Listræninginn, RUV
„Mjög vel heppnuð sýning ...Ævintýraleg og ofsalega áferðafalleg sýning...afbragðsleikur...ótrúlega hnökralaus sýning...mæli fullkomlega með henni.“
Víðsjá, RUV, S.G.:
„Fanný og Alexander er hin prýðilegasta sýning... Leikhópurinn stendur sig með ágætum. ...sýningin er gerð af fagmennsku og innlifun“
Sýningar
| Dagsetning & tími | Svið | Sýningar | Ath |
|---|---|---|---|
| 23. 02 2012 - kl. 20:00 | Stóra svið | aukasýning | |
| 24. 02 2012 - kl. 20:00 | Stóra svið | 10. kortasýning | |
| 25. 02 2012 - kl. 20:00 | Stóra svið | aukasýning | |
| 01. 03 2012 - kl. 20:00 | Stóra svið | 11. kortasýning | |
| 02. 03 2012 - kl. 20:00 | Stóra svið | 12. kortasýning | |
| 04. 03 2012 - kl. 20:00 | Stóra svið | aukasýning | |
| 08. 03 2012 - kl. 20:00 | Stóra svið | aukasýning | |
| 09. 03 2012 - kl. 20:00 | Stóra svið | sýning | |
| 11. 03 2012 - kl. 20:00 | Stóra svið | aukasýning | |
| 15. 03 2012 - kl. 20:00 | Stóra svið | sýning | |
| 17. 03 2012 - kl. 20:00 | Stóra svið | sýning | |
| 18. 03 2012 - kl. 20:00 | Stóra svið | sýning | |
| 23. 03 2012 - kl. 20:00 | Stóra svið | sýning | |
| 25. 03 2012 - kl. 20:00 | Stóra svið | sýning | |
| 31. 03 2012 - kl. 20:00 | Stóra svið | sýning |

