Helga I. Stefánsdóttir

Helga I. Stefánsdóttir lauk námi frá leikmyndadeild L'Accademia di Belle Arti di Roma 1989 og hefur starfað sem leikmynda og búningahöfundur frá þeim tíma fyrir leikhús, kvikmyndir og sjónvarp. Meðal síðustu verkefna Helgu voru búningar fyrir Enron, Ófagra og Amadeus hér í Borgarleikhúsinu og leikmynd og búningar fyrir Dauðasyndirnar, Gítarleikarana og Carmen einnig í Borgarleikhúsinu. Búningar fyrir Lé konung, Gerplu, Ivanov, Pétur Gaut, Þetta er allt að koma hjá og leikmynd og búningar fyrir Þrettándakvöld, Hálsfesti Helenu einnig hjá Þjóðleikhúsinu. Helga hefur verið tilnefnd til fjölda Grímuverðlauna fyrir verk sín. Hún er búningahöfundur kvikmyndarinnar Djúpið sem er í eftirvinnslu, einnig Mömmu Gógó og Brúðgumans en fyrir hana fékk hún Edduverðlaunin 2008, Last Winter, A Little Trip to Heaven, Niceland, Kaldaljóss, Virus in Paradise, Fálka, No Such Thing og Engla Alheimssins. Hún var höfundur leikmyndar fyrir kvikmyndina Regínu og þáttaraðarinnar Allir litir hafsins eru kaldir.Helga var yfirmaður búningadeildar fyrir kvikmyndina Flags of our Fathers.

Nýlegar sýningar í Borgarleikhúsinu

Galdrakarlinn í Oz Búningar
Núna! Búningar
Núna! Leikmynd
Rautt Leikmynd
Rautt Búningar
Beðið eftir Godot Leikmynd
Beðið eftir Godot Búningar
Galdrakarlinn í Oz Búningar
Enron Búningar
Dauðasyndirnar Leikmynd
Dauðasyndirnar Búningar