Hilmar Guðjónsson

Hilmar Guðjónsson útskrifaðist frá Leiklistardeild Listaháskóla Íslands vorið 2010 og var þegar fastráðinn við Borgarleikhúsið. Hilmar hefur þó áður stigið á svið með Leikfélagi Reykjavíkur en hann lék hlutverk Billy í sýningunni Geitin, eða hver er Sylvía áður en hann hóf leiklistarnám. Auk þess hefur hann farið með hlutverk í kvikmyndunum Bjarnfreðarson og Á annan veg. Hilmar lék sitt fyrsta hlutverk í Borgarleikhúsinu að lokinni útskrift haustið 2010 í sýningunni Enron en lék svo hlutverk Trinkúlós í Ofviðrinu á Stóra sviðinu og hlutverk, Guðfinns Maacks í Nei, Ráðherra og nú síðast Fuglahræðuna í Galdrakarlinum í Oz. HIlmar var haustið 2011 valinn í hóp Shooting Stars, ungra efnilegra kvikmyndaleikara í Evrópu.

Nýlegar sýningar í Borgarleikhúsinu

Fanný og Alexander Leikari
Galdrakarlinn í Oz Leikari
Mýs og menn Leikari
Rautt Leikari
Fanný & Alexander Leikari
Galdrakarlinn í Oz Leikari
Nei, ráðherra! Leikari
Enron Leikari
Nei, ráðherra! Leikari
Ofviðrið Leikari