Karl Ágúst Úlfsson

Karl Ágúst Úlfsson lauk námi frá Leiklistarskóla Íslands 1981 og lék í mörg ár á sviði, í sjónvarpi og í kvikmyndum. Á síðari árum hefur hann einkum starfað í leikhúsi og við sjónvarp sem höfundur, leikstjóri og þýðandi. Karl Ágúst lauk MFA-gráðu í leikritun, handritagerð og leikstjórn við Ohio University árið 1994. Fjögur verka hans hafa verið sett á svið í Bandaríkjunum, The Guarding Angel, A Guy Named Al, Body Parts og The Iceman Is Here. Meðal leikverka Karls Ágústs sem sýnd hafa verið á Íslandi eru Í hvítu myrkri í Þjóðleikhúsinu, söngleikirnir Fagra veröld í Borgarleikhúsinu og Ó, þessi þjóð í Kaffileikhúsinu, Stóllinn hans afa, sem Hafnarfjarðarleikhúsið sýndi á vinnustöðum og sjónvarpsleikritin Fyrsta atriði, Æ,æ og Ást í bakaríi. Auk þess hefur hann þýtt yfir þrjátíu leikverk fyrir útvarp og leiksvið, þar á meðal Jesus Christ Superstar sem sett var upp í Borgarleikhúsinu árið 2007.

Nýlegar sýningar í Borgarleikhúsinu

Á sama tíma að ári Þýðing
Gulleyjan Leikgerð
Harry & Heimir Höfundur
Harry & Heimir Leikstjórn
Harry & Heimir Leikari
Gosi Leikgerð