Þórhallur Sigurðsson

Þórhallur Sigurðsson hefur leikstýrt á fjórða tug leiksýninga við Þjóðleikhúsið. Hann hefur meðal annars stýrt frumflutningi á mörgum íslenskum verkum í Þjóðleikhúsinu. Meðal leikstjórnarverkefna hans eru Sölumaður deyr, Bílaverkstæði Badda, Kæra Jelena, Hafið, Gauragangur, Þrek og tár, Græna landið og Koddamaðurinn. Þórhallur hefur unnið við fjölmargar barnasýningar í fjörtíu ár sem leikari og leikstjóri. Hann hefur leikið hlutverk eins og Grislinginn í Bangsimon, Litla Kláus, Aldinborann í Ferðinni til tunglsins, Jónatan í Kardimommubænum svo nokkur séu nefnd. Hann leikstýrði barnaleikritunum Krukkuborg, Ömmu þó, Emil í Kattholti, Bláa hnettinum og Jóni Oddi og Jóni Bjarna. Síðasta leikstjórnarvefkefni Þórhalls var Hart í bak í Þjóðleikhúsinu síðastliðið haust. Þórhallur Sigurðsson leikstýrði Söngvaseið á Stóra sviði Borgarleikhússins.

Nýlegar sýningar í Borgarleikhúsinu

Skoppa og Skrítla Leikstjórn
Söngvaseiður Leikstjórn