Miðasala
midakerfi

Miðasala

568 8000

Velkominn á miðasölu Borgarleikhússins

Hér á vefnum getur þú keypt leikhúsmiða og gjafakort allan sólahringinn.

Kaupa miða


Í Miðasölunni getur þú einnig keypt ýmsan varning tengdan sýningum, t.d. leikskrár, geisladiska, veggspjöld, bækur ofl.
Gjafakortin okkar sívinsælu eru til sölu í miðasölu og á vefnum allan ársins hring.

Mætið tímanlega og njótið kvöldsins

Leikhúsgestir eru hvattir til þess að mæta 20 mínútum fyrir leiksýningar. Þær hefjast á tilsettum tíma og þá er salnum lokað. Forsalur Borgar­leikhússins er rúmgóður og notalegur, þar má njóta léttra veitinga, glugga í leikskrár og eiga notalega stund fyrir sýningu. Tilvalið er að panta drykki fyrir sýningu sem eru tilbúnar í hléi. Þannig nýtur þú hverrar mínútu í leikhúsinu. Eftir leiksýningar geta leikhúsgestir sest niður í forsalnum og fengið sér veitingar á Leikhúsbarnum í forsal hússins sem opinn er til miðnættis öll sýningarkvöld.

Happ í Borgarleikhúsinu

Nýjun í Borgarleikhúsinu í vetur - Gómsæt leikhúsveisla fyrir sýning eða í hléi úr eldhúsi Happ.

Veitingastaðurinn Happ hefur vakið verðskuldaða athygli fyrr ferskan, hollan og bragðgóðan mat, þar sem sköpunarkrafturinn fær að leika lausum hala. Nú er hægt að panta Happ rétti fyrir sýningar eða í hléi og njóta Leikhússins ennþá betur.
Hafði samband við miðasölu áður en komið er í Leikhúsið og pantaða gómsætan leikhúsverð frá Happ.

Matseðill fyrir september og október:
Ferskt sala með lambafile, tómötum, mozzarella og valhnetuolíu.
Litlar ljúfengar pitsusnitur á stökkum botni með fersku grænmeti, ávöxtum, hnetum, osti og pestó.
Mjúk, dökk súkkulaðikaka með hvítum súkkulaðimolum.

Gott aðgengi fyrir fatlaða

Borgarleikhúsið tekur vel á móti fötluðum og státar m.a. af góðu aðgengi og áhorfendastæðum fyrir hjólastóla.

Næg bílastæði

Fyrir leiksýningar er alla jafna rúmgott á bílastæðum við Kringluna. Leikhúsgestir ættu því ekki að vera í vanda með að leggja bílum sínum.

Strætó stoppar fyrir utan

Í kringum Borgarleikhúsið stoppa strætisvagnar frá öllum hverfum borgarinnar. Fólk getur skilið bílinn eftir heima, notið leikhúskvöldsins í rólegheitum og náð síðustu ferð heim aftur.

 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica