Áskriftarkort

Áskriftarkort Borgarleikhússins

Fjórar leiksýningar á einungis 11.900 kr.

Hvernig virkar kortið?

Þú velur þær fjórar leiksýningar sem vekja mestan áhuga þinn af dagskrá vetrarsins. Þú færð úthlutað tiltekinni sýningu á viðkomandi uppsetningu og er það skráð á kortið þitt (t.d. 3. Kortasýning). Þegar nær dregur getur þú fylgst með hvaða dag viðkomandi sýning verður, sýningaráætlun birtist á vef Borgarleikhússins, í Morgunblaðinu og víðar. Þremur dögum fyrir sýningu færðu áminningu um sýninguna senda sem smáskilaboð (sms).  Síðan mætir þú einfaldlega í leikhúsið, sýnir kortið og nýtur töfrandi stundar í leikhúsinu. Ef dagsetningin hentar þér ekki, þá getur þú leitað til miðasölu okkar og starfsfólk aðstoðar við að flytja sætin á aðra sýningu. Við förum fram á að breytingar séu gerðar tímanlega, eigi síðar en sólarhring fyrir viðkomandi sýningu.

Sumir fá sér tvö

Ef þú vilt sjá fleiri sýningar en fjórar er að sjálfsögðu velkomið að kaupa fleiri kort. Þannig er hægt að tryggja sér miða á 4, 8, 12 eða 16 sýningar með áskriftarkorti Borgarleikhússins.

Með áskriftarkorti færð þú:

  • 37% afslátt af almennu miðaverði
  • öruggt sæti og missir ekki af þeim leiksýningum sem þig langar mest að sjá
  • betri kjör á gjafakortum og viðbótarmiðum
  • afslátt af varningi sem seldur er í miðasölu
  • lægra miðaverð hjá Leikfélagi Akureyrar
  • sertilboð á valda tónleika hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands
Mundu að skrá netfang þegar þú kaupir áskriftarkort til að missa ekki af sértilboðum til korthafa

Skoða Borgarleikhúsblaðið

 

Kaupa áskrift

 

Leikhús á bíóverði

Fólk yngra en 25 ára fær áskriftarkort á hálfvirði, 6.500 kr. Kortin eru að öllu leyti eins og almenn kort og hægt er að velja um allar sýningar leikársins.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica