Veitingasala

Veitingasala

Njóttu alls sem leikhúsið hefur upp á að bjóða

Í Borgarleikhúsinu er boðið upp á fjölbreyttar veitingar fyrir sýningu, í hléi og eftir sýningu. Starfsfólk í miðasölu og veitingasölu tekur við pöntum fyrir sýningu.


HappHapp í Borgarleikhúsinu

Nýjung í Borgarleikhúsinu í vetur! - Gómsæt leikhúsveisla fyrir sýningu eða í hléi úr eldhúsi Happ.

Veitingastaðurinn Happ hefur vakið verðskuldaða athygli fyrr ferskan, hollan og bragðgóðan mat, þar sem sköpunarkrafturinn fær að leika lausum hala. Nú er hægt að panta Happ-rétti fyrir sýningu eða í hléi og njóta leikhúsferðarinnar ennþá betur.
Hafði samband við miðasölu áður en komið er í leikhúsið og pantaða gómsætan leikhúsverð frá Happ. 

Happ býður upp á þrjár snittur sem eru gerðar úr Happbrauði                  sem er ger- og sykurlaust brauð. Á snittunum er:
- Rauðbeðumauk með eplasalsa
- Lambafille með sætkartöflumús og hindberjasósu
- Jólakjúklingur með waldorfsalati og trönuberjasósu

 
Í eftirrétt er boðið upp á súkkulaðiköku með hvítum súkkulaðidropum, ferskum berjum og vanillusósu



------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Tilboð fyrir hópa

Fátt er skemmtilegra fyrir hópa en að skella sér saman í leikhúsið.

Hópferð í Borgarleikhúsið er sérlega vinsæl enda  bjóðum við sanngjarnan hópaafslátt. Hafðu samband við miðasölu okkar og fáðu tilboð fyrir hópinn þinn.
Stærri hópum býðst skoðunarferð um leikhúsið fyrir sýningu. Hafðu samband við miðasölu okkar með góðum fyrirvara.
Hægt er að panta gómsæta máltíð fyrir sýningu fyrir hópa. Hafðu samband við miðasölu til að fá frekari upplýsingar.


Dagskráin gæti litið svona út:


18.00 Mæting í Borgarleikhúsið. Veitingasala opin


18.30 Leikhúsið að tjaldabaki. Skoðunarferð með leikhússtjóra


19.00 Léttur kvöldverður (sjá neðar)

20.00 Sýning kvöldsins.

Pöntun á mat þarf að berast í síðasta lagi viku fyrir sýningu. 

 

Matseðill


Tilboð 1
Matarmikil gúllassúpa m/ heimabökuðu brauði.
Kr. 1.750 á mann.
Lágmark 20 manns

Tilboð 2
Okkar vinsælu brauðhlaðborð sem minna á rómversku hlaðborðin til forna!
Drekkhlaðið borð af nýbökuðu brauði, ostum, berjum, hummus, ítölsku og frönsku salami, pestó, ólífum og ávöxtum.
Kr. 1.950 á mann.
Lágmark 40 manns.




Tilboð 3
Indverskur lamba/kjúklinga pottréttur m/ hrísgrjónum, salati og mango cutney.
Kr. 2.150 á mann.
Lágmark 20 manns.

Tilboð 4
Úrbeinað kjúklingalæri í satay sósu með hrísgrjónum, salati og heimabökuðu brauði.
Kr. 2.150 á mann
Lágmark 20 manns

Tilboð 5
Úrbeinað lambalæri að hætti kokksins með salati, bökuðu rótargrænmeti.
Kr. 2.850 á mann.
Lágmark 20 manns




Þetta vefsvæði byggir á Eplica