Listamenn

Vigdís Gunnarsdóttir


    Vigdís Gunnarsdóttir útskrifaðist frá Leiklistarskóla Íslands vorið 1993. Hún hefur einkum leikið hjá Þjóðleikhúsinu en hefur einnig leikið í Hvað um Leonardó? hjá Leikfélagi Reykjavíkur. Meðal hlutverka hennar í Þjóðleikhúsinu eru Rauðhetta í Skilaboðaskjóðunni, stúlkan í Blóðbrullaupi, Allrahanda í West Side Story, Sigríður í Þreki og tárum, Fannhvít í Nönnu systur, Khava í Fiðlaranum á þakinu, Þóra í Grandavegi 7, Velvet í Poppkorni, titilhlutverkið í Solveigu, Halla hrekkjusvín í Glanna glæp í Latabæ, Natella Abasvílí, Aníkó og fleiri hlutverk í Krítarhringnum í Kákasus, Dúnjasha í Kirsuberjagarðinum og Dóra Bailey og fleiri hlutverk í Syngjandi í rigningunni. Vigdís hefur einnig sótt nám í sjónvarpshandritagerð við Goldsmiths College í London.

    Nýlegar sýningar í Borgarleikhúsinu

    Skoppa og Skrítla á tímaflakki Leikarar
    Enron Leikarar
     


Þetta vefsvæði byggir á Eplica