Listamenn

Jón Páll Eyjólfsson


    Jón Páll Eyjólfsson útskrifaðist árið 2000 frá East 15 Acting School í London og lék í uppfærslu Young Vic Theatre Company á The Three Musketeers sama ár. Hann hefur sem leikari meðal annars tekið þátt í uppfærslum hjá Þjóðleikhúsinu, Hafnarfjarðarleikhúsinu auk þess að vinna með sjálfstæðum leikhópum. Þar má nefna Syngjandi í Rigningunni, Cyrano, Grettisögu, Gaggalagú, Grís, Meistarann og Margarítu, Rauðu Skóna og Úlfhamsögu. Á síðari árum hefur Jón Páll snúið sér æ meira að leikstjórn. Hann leikstýrði Herra Kolbert og Maríubjöllunni hjá LA og Hér og nú í Borgarleikhúsinu. Jón Páll var fastráðinn leikstjóri við Borgarleikhúsið leikárið 2008 til 2009 og leikstýrði þar sýningunum Vestrið eina og Óskar og bleikklædda konan. Hann gerði einnig sýninguna Þú ert hér árið 2009 í Borgarleikhúsinu ásamt þeim Jóni Atla Jónassyni og Halli Ingólfssyni en þeir félagar deildu með sér leik, leikstjórn og handritsgerð. Sú sýning var tilnefnd til fimm Grímuverðlauna, m.a. sem sýning ársins.

    Nýlegar sýningar í Borgarleikhúsinu

    Þú ert hér Höfundur
    Þú ert hér Leikstjórn
    Þú ert hér Leikmynd
    Þú ert hér Búningar
    Þú ert hér Leikarar
    Góðir íslendingar Höfundur
    Góðir íslendingar Leikstjórn
    Góðir íslendingar Leikarar
    Heima er best Leikstjórn
    Vestrið Leikstjórn
    Óskar og bleikklædda konan Leikstjórn
    Elsku barn Leikstjórn
    Strýhærði Pétur Leikstjórn
     


Þetta vefsvæði byggir á Eplica