Beint í leiðarkerfi vefsins.
Valdimar Örn Flygenring útskrifaðist frá L.Í. 1986. Eftir það tók við 10 ára tímabil hjá L.R. þar sem hann lék m.a. í frumuppfærslunni á Degi Vonar, Hamlet, Síldin kemur, Sveitasinfóníu o.fl. Leikárið 1994/95 lék hann hjá L.A. í Sporvagninum Girnd, Dracula og Nönnu systur. Síðustu 10 árin hefur hann verið samningsbundinn Þjóðleikhusinu og leikið m.a. í Ketti á heitu blikkþaki, Sjálfstæðu fólki, Vér morðingjum, Laufunum í Toscana, Grjótharðir og Pabbastrák. Hjá sjálfstæðum leikhópum True west , Fool for love og Heddu Gabler og í Hræðilegri hamingju hjá Alþýðuleikhúsinu. Hann hefur leikið í fjölmörgum bíómyndum, nú síðast í Mýrinni, og tekið þátt í fjölmörgum sjónvarpsverkefnum, m.a. Kallakaffi, útvarpsleikritum og auglýsingum innanlands og erlendis.