Listamenn

Tinna Lind Gunnarsdóttir


    Tinna Lind Gunnarsdóttir útskrifaðist frá Leiklistardeild Listaháskóla Íslands vorið 2007. Í útskriftarsýningu Nemendaleikhússins fór hún með hlutverk Vöku í Lífið-Notkunarreglur eftir Þorvald Þorsteinsson sem unnin var í samstarfi við LA og sýnt í Rýminu síðastliðið vor. Önnur hlutverk voru Móðirin í Blóðbrúðkaupi Lorca og hún sjálf í samsettri sýningu hópsins, Hvít Kanína í leikstjórn Jóns Páls Eyjólfssonar en þessar sýningar voru báðar sýndar á Litla sviði Borgarleikhússins. Tinna átti verk í Dansleikhússamkeppni Borgarleikhússins og Íslenska Dansflokksins vorið 2005. Tinna leikur Sögu Ringsted í Fló á skinni.

     


Þetta vefsvæði byggir á Eplica