Beint í leiðarkerfi vefsins.
Ellert A. Ingimundarson útskrifaðist frá Leiklistarskóla Íslands árið 1982. Hann hefur verið afkastamikill leikari og komið víða við. Ellert hefur leikið hjá Þjóðleikhúsinu, Borgarleikhúsinu, Leikfélagi Akureyrar, Frú Emilíu, Íslenska dansflokknum og Pars pro toto dansleikhúsinu. Meðal sýninga sem Ellert hefur tekið þátt í eru Land míns föður, Vesalingarnir, Hver er hræddur við Virginíu Wolf, Mercedes, Hamskiptin og Dúfnaveislan. Ellert var fastráðinn við Borgarleikhúsið frá 1991 til 2008 og hefur leikið fjölda hlutverka í Borgarleikhúsinu, meðal sýninga eru Fegurðardrottningin frá Línakri, Kristnihald undir jökli, Salka Valka, Sölumaður deyr, Belgíska Kongó, Amadeus, Dagur vonar og Fjölskyldan. Ellert hefur einnig leikið í fjölda sjónvarpsþátta og kvikmynda, þeirra á meðal eru Tár úr steini, Börn, Hafið, Jóhannes, Kallakaffi, Pressa og Hamarinn.
| Fjölskyldan (Ágúst í Osage-sýslu) | Leikarar | |
| Gauragangur | Leikarar | |
| Enron | Leikarar |