Beint í leiðarkerfi vefsins.
Þorsteinn Gunnarsson er fæddur í Reykjavík 18. desember 1940. Fyrsta hlutverk hans á sviði var í Browningþýðingunni eftir Terrence Rattigan sem frumsýnt var í Iðnó árið 1957. Þorsteinn var fastráðinn leikari hjá LR í þrjá áratugi, lék í um það bil sjötíu leikverkum. Þorsteinn leikstýrði tíu sýningum hjá Leikfélagi Reykjavíkur og var leikhússtjóri þess árin 1980 – 1983, ásamt Stefáni Baldurssyni. Þorsteinn lék einnig nokkrum sinnum í Þjóðleikhúsinu, fjölmörg hlutverk í útvarpi og sjónvarpi, auk leikstjórnar í báðum miðlum og í nokkrum kvikmyndum. Auk leiklistarnáms er Þorsteinn menntaður arkitekt. Hann er einn þriggja arkitekta Borgarleikhússins. Einnig hefur Þorsteinn um langt skeið unnið að endurreisn merkra bygginga á Íslandi, m.a. Viðeyjarstofu og Viðeyjarkirkju, Nesstofu og Bessastaðastofu, Stjórnarráðshússins og Alþingishússins, Dómkirkjunnar í Reykjavík og Hóladómkirkju.
| Faust | Leikarar | |
| Gauragangur | Leikarar |