Listamenn

Theodór Júlíusson


    Theodór Júlíusson er með Diploma í leiklist frá The Drama Studio London. Hann var fastráðinn leikari hjá Leikfélagi Akureyrar 1978 til 1989 og lék fjölda hlutverka t.d Búa Árland í Atómstöðini, Sölva Helgasson í Ég er gull og gersemi og Mjólkurpóstinn Tevje í Fiðlaranum á þakinu. Theodór lék sitt fyrsta hlutverk hjá Leikfélagi Reikjavíkur sem gestaleikari 1987 í söngleiknum Maraþondansi en kom svo aftur til starfa hjá félaginu við opnun Borgarleikhúss árið 1989, hefur starfað þar síðan og leikið fjölda hlutverka auk þess sem hann lék í Kaffi í Þjóðleikhúsinu. Meðal nýlegra sýninga í Borgarleikhúsinu má nefna Gosa, Fló á skinni, Fýsn, Milljarðamærin snýr aftur, Söngvaseið og Fjölskylduna. Theodór hefur tvisvar verið tilnefndur til Grímuverðlauna fyrir hlutverk sín í Puntilla og Matta og Söngleiknum Ást. Theodór hefur leikstýrt fjölda sýninga hjá áhugaleikfélögum og einnig hjá Leikfélagi Akureyrar. Hann hefur leikið í ótal útvarpsleikritum, sjónvarps- og kvikmyndum t.a.m Englum alheimsins, Hafinu, Ikingút, Mýrinni, Sveitabrúðkaupi og Reykjavík-Rotterdam. Theodór er varaformaður stjórnar Leikfélags Reykjavíkur.

    Nýlegar sýningar í Borgarleikhúsinu

    Söngvaseiður Leikarar
    Fjölskyldan (Ágúst í Osage-sýslu) Leikarar
    Gauragangur Leikarar
    Milljarðamærin snýr aftur Leikarar
    Gosi Leikarar
    Fýsn Leikarar
     


Þetta vefsvæði byggir á Eplica