Beint í leiðarkerfi vefsins.
Kjartan Ragnarsson lauk námi frá Leiklistarskóla Leikfélags Reykjavíkur árið 1966 og lék í mörgum sýningum á vegum LR. Hann fór brátt einnig að leikstýra og skrifa leikrit, en hann hefur auk þess gert leikgerðir. Kjartan hefur sjálfur leikstýrt flestum verkum sínum, en meðal þeirra má nefna Saumastofuna, Blessað barnalán, Jóa, Skilnað og Land míns föður sem sett voru á svið hjá Leikfélagi Reykjavíkur og Peysufatadaginn og Dampskipið Ísland sem Kjartan samdi fyrir Nemendaleikhús Leiklistarskóla Íslands. Meðal leikgerða Kjartans má nefna Ofvitann eftir sögu Þórbergs Þórðarsonar, Ljós heimsins og Höll sumarlandsins eftir Heimsljósi Halldórs Laxness, Djöflaeyjuna eftir sögu Einars Kárasonar og Evu Lunu eftir samnefndri skáldsögu Isabelle Alliende. Meðal annarra leikstjórnarverkefna Kjartans má nefna Hamlet, Vanja frænda, Platonov, Þrúgur reiðinnar og Kontrabassann hjá Leikfélagi Reykjavíkur, Kirsuberjagarðinn, Stræti, Mávinn og Þrjár systur hjá nemendaleikhúsi Leiklistarskólans í Malmö, Platonov hjá Borgarleikhúsinu í Malmö, Grandaveg 7 við Borgarleikhúsið í Gautaborg og Ég er meistarinn eftir Hrafnhildi Hagalín Guðmundsdóttur í Gdansk í Póllandi og Pétur Gaut hjá Borås Statsteater.
| Milljarðamærin snýr aftur | Leikstjórn |