Listamenn

Sólveig Arnarsdóttir


    Sólveig Arnarsdóttir lærði leiklist við Hochschule für Schauspielkunst Berlin "Ernst Busch" og útskrifaðist þaðan árið 1999. Sólveig hafði leikið töluvert áður en hún hélt utan til náms, og má þar nefna titilhlutverkið í Evu Lunu hjá Borgarleikhúsinu. Hún fór ennfremur með aðalhlutverk í kvikmyndinni Inguló. Eftir að hún lauk námi lék hún titilhlutverkið í Heimili Bernörðu Alba hjá B.A.T. Studiobühne "Ernst Busch" og Gabrielle í Schnitt ins Fleish hjá Maxim Gorki Theater í Berlín. Sólveig hefur leikið í yfir 40 sjónvarps- og kvikmyndum auk Ingulóar. Hér á Íslandi lék hún í Regínu, en í Þýskalandi hefur hún leikið í Herz, Sternzeichen, Be.Angeled, Downhill City, Der Letzte Bus in Paradies, Wo das Meer ins Badezimmer Fliesst og Don Carlos. Einnig hefur hún leikið m.a. í sjónvarpsmyndunum Das Duo - Tod am Strand, Das Duo - Im Falschen Leben, Schluss mit Lustig, Geschichten aus dem Nachbarhaus, September og Zwischen Nacht und Tag. Fyrsta hlutverk Sólveigar við íslenskt leikhús að námi loknu var Ljóna í Strompleiknum hjá Þjóðleikhúsinu en þar hefur hún einnig leikið í Edith Piaf, Böndunum á milli okkar, Öxinni og jörðinni, Virkjuninni og Engisprettum.

    Nýlegar sýningar í Borgarleikhúsinu

    Eilíf óhamingja Leikarar
     


Þetta vefsvæði byggir á Eplica