Listamenn

Sigurður Sigurjónsson


    Sigurður Sigurjónsson lauk prófi frá Leiklistarskóla Íslands 1976 og lék lengi vel hjá Þjóðleikhúsinu. Meðal hlutverka hans þar má nefna Ragga í Bílaverkstæði Badda, Mikka ref í Dýrunum í Hálsaskógi, Berg í Hafinu og Gregers Werle í Villiöndinni. Þá hefur Sigurður leikið í fjölmörgum íslenskum kvikmyndum og í sjónvarpi, meðal annars með Spaugstofunni. Á síðari árum hefur Sigurður snúið sér í auknum mæli að leikstjórn. Hann leikstýrði Hellisbúanum í Íslensku óperunni, Dýrunum i Hálsaskógi í Þjóðleikhúsinu og Óvitum hjá Leikfélagi Akureyrar.

    Nýlegar sýningar í Borgarleikhúsinu

    Harry & Heimir Höfundur
    Harry & Heimir Leikstjórn
    Harry & Heimir Leikarar
    Dúfurnar Leikarar
    Afinn Leikarar
    Nei, ráðherra! Leikarar
     


Þetta vefsvæði byggir á Eplica