Beint í leiðarkerfi vefsins.
Lovísa Elísabet Sigrúnardóttir skaust upp á stjörnuhiminn íslenskrar tónlistarsenu fyrir rétt rúmu ári undir nafninu Lay Low. Eftir að útsendarar útgáfufyrirtækisins Cod Music heyrðu tvö lög frá Lovísu á My-space síðunum var undirritaður útgáfusamningur. Fyrsta plata Lay Low, Please don´t hate me, kom út í október 2006 og fór fljótlega á topp íslenskra plötulista og var með mest seldu plötum síðasta árs. Að auki hlutu lög hennar mikla spilun á öldum ljósvakans. Þegar Íslensku tónlistarverðlaunin voru veitt í janúar síðastliðinn var Lay Low óumdeildur sigurvegari hátíðarinnar. Hún var valin söngkona ársins, flytjandi ársins í símakosningu og plötuumslagið var valið það besta á árinu. Lovísa hefur verið iðin við spilamennsku bæði hér heima og víða erlendis. Hún var eitt aðalnúmer Iceland Airwaves-tónlistarhátíðarinnar í ár og framundan er spilamennska víða um heim. Auk þess að semja og flytja tónlist undir nafninu Lay Low, þá er Lovísa hluti af hljómsveitinni Benny Crespo´s Gang. Hún samdi og flutti tónlist fyrir leikritið Ökutíma sem sýnt var hjá Leikfélagi Akureyrar og Borgarleikhúsinu.
| Ökutímar | Tónlist |