Beint í leiðarkerfi vefsins.
útskrifaðist frá Leiklistarskóla Íslands árið 1981. Hún hefur verið fastráðin leikkona bæði hjá Þjóðleikhúsinu og Leikfélagi Reykjavíkur og leikið fjölmörg burðarhlutverk. Meðal hennar helstu hlutverka má nefna titilhlutverk í Línu Langsokk, Ronju Ræningjadóttur, Elínu Helenu, Hinu ljósa mani og Fegurðardrottningunni frá Línakri. Auk þess lék hún Ófelíu í Hamlet, Báru í Landi míns Föður, Steinunni í Óskinni (Galdra Lofti), Sonju í Vanja frænda, Soffíu í Platonof, Valgerði í Grandavegi 7, Úu í Kristnihaldi undir Jökli og Maju í Öndvegiskonum. Sigrún Edda hefur hlotið viðurkenningu úr minningarsjóði frú Stefaníu Guðmundsdóttur auk tilnefninga til menningarverðlauna DV fyrir leik sinn í Stjörnum á morgunhimni, Fegurðardrottningunni frá Línakri, Milljarðamærin snýr aftur og Fjölskyldunni. Hún var tilnefnd til Grímunnar sem leikkona ársins í aðalhlutverki fyrir Blanch í Sporvagninum Girnd, frú Zachanassian í Milljarðamærin snýr aftur, Barböru í Fjölskyldunni og Móðurina í Fólkinu í kjallaranum. Fyrir túlkun sína á Láru í Degi vonar hlaut hún Grímuna. Sigrún Edda hefur leikið í kvikmyndum, sjónvarpi og útvarpi. Hún hefur einnig starfað sem höfundur og leikstjóri. Sýning hennar á Ronju Ræningjadóttur var tilnefnd til Grímunnar 2006 og fyrir leikstjórn sína á útvarpsleikritinu Skáld leitar harms hlaut hún Grímuna.
| Söngvaseiður | Leikarar | |
| Fjölskyldan (Ágúst í Osage-sýslu) | Leikarar | |
| Gauragangur | Leikarar | |
| Milljarðamærin snýr aftur | Leikarar | |
| Ofviðrið | Leikarar | |
| Fólkið í kjallaranum | Leikarar | |
| Kirsuberjagarðurinn | Leikarar | |
| Svar við bréfi Helgu | Leikarar |