Listamenn

Sara Dögg Ásgeirsdóttir


    Sara Dögg Ásgeirsdóttir útskrifaðist með BFA gráðu í leiklist vorið 2005 frá Leiklistardeild Listaháskóla Íslands. Útskriftarverkefni hennar voru hlutverk Hermíu í Draumi á Jónsmessunótt, Issa kapteinn o.fl. í Spítalaskipinu og Sigurdísi í Draumleik eftir Strindberg en sú sýning hlaut Grímuverðlaun sem besta sýning ársins 2005. Sara hefur áður leikið í Viltu finna milljón og söngleiknum Gretti hjá Borgarleikhúsinu, hún lék Agnesi í Eilífri hamingju og nú síðast Elísabetu í Kommúnunni sem sett var upp af Borgarleikhúsinu og Vesturporti. Sara hóf leiklistarferilinn í kvikmynd Hrafns Gunnlaugssonar, Myrkrahöfðingjanum, áður en hún hóf leiklistarnám. Sara hefur verið áberandi í sjónvarpi og kvikmyndum allar götur síðan og má þar nefna hlutverk Önnu í Kaldaljósi, Ernu í Næturvaktinni og Láru í spennuþáttunum Pressunni.

    Nýlegar sýningar í Borgarleikhúsinu

    Eilíf óhamingja Leikarar
    Fýsn Leikarar
    Rómeó og Júlia Leikarar
     


Þetta vefsvæði byggir á Eplica