Beint í leiðarkerfi vefsins.
Rúnar Freyr Gíslason útskrifaðist frá Leiklistarskóla Íslands árið 1999. Hann var að loknu námi ráðinn við Þjóðleikhúsið en árið 2009 gerðist hann fastráðinn leikari við Borgarleikhúsið. Rúnar Freyr hefur farið með fjölda veigamikilla hlutverka. Meðal annars í RENT, Hver er hræddur við Virginíu Woolf?, Ríkarði þriðja, Sorgin klæðir Elektru, Græna landinu, Böndin á milli okkar, Koddamanninum, Leitinni að jólunum, Klaufum og kóngsdætrum og Virkjuninni. Meðal nýlegra hlutverka í Borgarleikúsinu má nefna Von Trapp í Söngvaseið, Steve í Fjölskyldunni og Valentín í Faust og Atli Geir í Nei, ráðherra. Rúnar Freyr var tilnefndur til Grímunnar fyrir leik sinn í Veislunni og Böndin á milli okkar. Hann lék Merkútsíó í Rómeó og Júlíu og Andreas í Woyzeck hjá Vesturporti. Meðal leikstjórnarverkefna hans eru söngleikirnir Hárið, Grettir og einleikurinn Hellisbúinn.
| Söngvaseiður | Leikarar | |
| Fjölskyldan (Ágúst í Osage-sýslu) | Leikarar | |
| Faust | Leikarar | |
| Gauragangur | Leikarar | |
| Nei, ráðherra! | Leikarar | |
| Kirsuberjagarðurinn | Leikarar | |
| Fanný & Alexander | Leikarar |