Beint í leiðarkerfi vefsins.
Randver Þorláksson útskrifaðist úr Leiklistarskóla Þjóðleikhússins árið 1970 og hefur verið í hópi vinsælustu leikara þjóðarinnar árum saman. Hann hefur lengst af verið fastráðinn leikari við Þjóðleikhúsið þar sem hann hefur leikið nálægt 200 hlutverk. Randver hefur leikið í fjölda útvarpsleikrita en þekktastur er hann fyrir hlutverk sín í sjónvarpi. Hlutverk hans í Spaugstofunni, vinsælasta sjónvarpsþætti landsins síðustu áratugi, eru ógleymanleg, hvort sem það er róninn á Arnarhóli eða Jóhanna Sigurðardóttir. Einnig hefur Randver birst í fjölda áramótaskaupa. Því má með sanni segja að Randver hafi verið fastagestur í stofum landsmanna árum saman. Auk þess að leika í þessum þáttum hefur hann verið meðal handritshöfunda. Randver hefur einnig leikið í fjölda kvikmynda, s.s. Stellu í orlofi, Magnúsi og Karlakórnum Heklu.