Listamenn

Ólafur Egill Egilsson


    Ólafur Egill Egilsson útskrifaðist frá leiklistardeild Listaháskóla Íslands vorið 2002. Ólafur hefur starfað sem leikari í Borgarleikhúsinu, Þjóðleikhúsinu og hjá Leikfélagi Akureyrar og auk þess með sjálfstæðu leikhópunum Vesturporti og Frú Emilíu. Ólafur hefur fengið Grímutilnefningar sem besti leikari fyrir Keith í Brimi eftir Jón Atla Jónasson og sem Þjónninn í Fögnuði eftir Harold Pinter en hlaut Grímuna fyrir Fagin í Óliver! og Lljovtsik í Svartri mjólk eftir Vassily Sigarov. Ólafur hefur leikstýrt eigin leikgerðum af Lilliom og Hundshjarta hjá Herranótt og Tartuffe í Stúdentaleikhúsinu. Ólafur leikstýrði einnig verki Jóns Atla Jónassonar Krádplíser með Reykvíska listaleikhúsinu og gerði búninga kvikmyndarinnar Myrkrahöfðinginn og leikmyndir Grease og Fame. Ólafur er meðhöfundur kvikmyndanna Sumarlandið og Brim og skrifaði einnig kvikmyndahandritið að Brúðgumanum og vann leikgerð úr bók Halldórs Laxness Gerplu í samvinnu við Baltasar Kormák.

    Nýlegar sýningar í Borgarleikhúsinu

    Rómeó og Júlia Leikarar
    Fólkið í kjallaranum Leikgerð
    Klúbburinn Höfundur
    Svar við bréfi Helgu Leikgerð
     


Þetta vefsvæði byggir á Eplica