Listamenn

Pétur Einarsson


    Pétur Einarsson hefur starfað hjá Leikfélagi Reykjavíkur síðan árið 1963 en í janúar það ár fór hann með hlutverk unga herrans í Ástarhringnum eftir Arthur Schnitzler. Síðan hefur Pétur leikið rúmlega 90 hlutverk í leiksýningum félagsins. Pétur hefur leikstýrt mörgum verkefnum fyrir LR, fyrst Þegar amma var ung, í nóvember árið 1968, og svo m.a. Á köldum klaka árið 1990 og Ef væri ég gullfiskur eftir Árna Ibsen árið 1996. Pétur Einarsson var skólastjóri Leiklistarskólans frá stofnun hans árið 1975 til ársins 1983. Hann var lengi formaður Félags leikstjóra á Íslandi. Meðal sýninga sem Pétur hefur leikið í hjá Borgarleikhúsinu eru Sporvagninn girnd, Híbýli vindanna, Salka Valka, Ást, Milljarðamærin snýr aftur og Fjölskyldan.

    Nýlegar sýningar í Borgarleikhúsinu

    Söngvaseiður Leikarar
    Fjölskyldan (Ágúst í Osage-sýslu) Leikarar
    Gauragangur Leikarar
    Milljarðamærin snýr aftur Leikarar
     


Þetta vefsvæði byggir á Eplica